Rússlandsher skaut niður 25 dróna nærri Sankti Pétursborg í nótt. Frá þessu greinir héraðsstjórinn Alexander Drozdenko á Telegram.
Á miðvikudag gerði Úkraínuher drónaárásir á olíuinnviði í Pétursborg. Þann sama dag hófst alþjóðleg efnahagsráðstefna í borginni en henni lýkur á morgun. Ráðstefnan hefur verið kölluð „Davos Pútíns“.
Sergei Sobyanin, borgarstjóri Moskvu, greinir frá því að Rússlandsher hafi skotið niður níu úkraínska dróna sem stefndu á rússnesku höfuðborgina.
Aukinn kraftur hefur færst í drónaárásir Rússa og Úkraínumanna á síðustu dögum. Fyrr í vikunni birit Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti opið bréf þar sem hann bauð Vladimír Pútín Rússlandsforseta til friðarviðræðna.
Pútín sér aftur á móti engan tilgang í að funda fyrr en friðarsamningur liggur fyrir. Hann ávarpaði blaðamenn í gær og sagði að stríðinu lyki ekki fyrr en Rússar hefðu náð markmiðum sínum.