Rússnesk stjórnvöld slökktu tímabundið á hluta sérhæfðs eftirlitsmyndavélakerfis sem notað er til að tryggja öryggi Vladimírs Pútíns forseta eftir að áhyggjur jukust af því að erlendar leyniþjónustur gætu nýtt sér kerfið til njósna.
Frá þessu greinir Financial Times og vísar í heimildarmenn sem þekkja til málsins.
Samkvæmt heimildum blaðsins var kerfið ekki tekið aftur í notkun fyrr en eftir að því hafði verið komið í lokað umhverfi án nettengingar.
Samkvæmt umfjöllun Financial Times óttuðust rússnesk yfirvöld að sambærilegum aðferðum og þeim sem beitt var í Íran yrði beitt gegn rússneskum embættismönnum.
Þar nýttu ísraelskar leyniþjónustur sér að sögn aðgang að eftirlitsmyndavélum og gervigreind til að fylgjast með ferðum háttsettra embættismanna. Meðal þeirra var Ali Khamenei, æðstiklerkur Írans, sem var drepinn í loftárásum Bandaríkjanna og Ísraels þann 28. febrúar.
Sjá einnig: Hökkuðu sig inn í umferðarmyndavélar og kortlögðu ferðir Khamenei mánuðum saman
Í leynilegri aðgerð Ísraelsmanna var myndefni úr umferðarmyndavélum í Teheran að sögn greint með hjálp gervigreindar og notað til að fylgjast með ferðum öryggisstarfsmanna og greina hegðunarmynstur þeirra.
Málið hefur vakið áhyggjur hjá öryggis- og leyniþjónustum víða um heim. Samkvæmt Financial Times óttast öryggisyfirvöld í auknum mæli að nútíma eftirlitskerfi geti breyst úr öryggistækjum í vopn fyrir óvinaríki. Með aðstoð gervigreindar sé nú hægt að greina milljónir klukkustunda af myndefni, kortleggja ferðir einstaklinga og greina tengslanet þeirra með áður óþekktri nákvæmni.
Samkvæmt Financial Times geta nýjustu kerfin unnið úr myndskeiðum út frá skriflegum skipunum. Þannig sé hægt að leita að tilteknum hegðunarmynstrum eða atburðum fremur en eingöngu andlitum einstaklinga.
Rússnesk öryggisyfirvöld eru sögð hafa verið fljót að bregðast við þessari þróun. Þrátt fyrir varúðarráðstafanir rússneskra yfirvalda segir Financial Times að óháður úkraínskur tölvuþrjótur hafi haldið því fram að myndavélakerfi í Moskvu, þar á meðal í nágrenni Kremlar, séu enn viðkvæm fyrir innbrotum.