Orð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um skrif Heimis Más Péturssonar, framkvæmdastjóra Flokks fólksins, sem hún lét falla á Alþingi í gær hafa valdið rússneska sendiráðinu bæði undrun og harmi, að því er fram kemur í færslu á Facebook-síðu sendiráðsins.
Skrif um hermenn og kjarnorkuvopn rötuðu inn á þing
Heimir Már skrifaði athugasemd við færslu Emmanuels Macrons, forseta Frakklands, og hvatti hann til að senda hermenn til Úkraínu til að berjast við Rússa og hafa kjarnorkuvopnin tilbúin. Hann eyddi síðar færslunni og baðst afsökunar.
Stefán Vagn Stefánsson, varaformaður Framsóknarflokksins, spurði utanríkisráðherra út í orð Heimis Más. Hann sagði þau geta valdið Íslandi orðsporsáhættu. Þorgerður Katrín sagðist ekki sjá ástæðu til að elta ólar við færslu Heimis Más.
Hún hafði orð á því að enginn í stjórnarandstöðunni hefði haft orð á því þegar fyrrum forráðamaður íslenskra stjórnvalda hefði deilt færslu Sergei Lavrovs, utanríkisráðherra Rússlands, sem hefði agnúast út í sameiginlega eftirlitssveit Atlantshafsbandalagsins sem ætti að auka öryggi á norðurslóðum. Þar vísaði hún líkast til Ólafs Ragnars Grímssonar.
Rússarnir bregðast við
Rússneska sendiráðið gerir athugasemd við þessi orð Þorgerðar Katrínar. Í færslu á Facebook-síðu sendiráðsins segir að það undrist orð hennar um að það sé alvarlegra að deila færslu rússnesks starfsbróður hennar heldur en að hvetja til þess að hafa kjarnorkuvopn tilbúin til notkunar.
Sendiráðið segist harma að Þorgerður Katrín líti svo á að það sé alvarlegra að lesa skrif Lavrovs en að hvetja til stigmögnunar með kjarnorkuvopnum. Það lýkur þó færslu sinni á að fagna orðum Þorgerðar Katrínar um að Ísland styðji kjarnorkuafvopnun.