Engan hefur sakað enn sem komið er en nokkrir íbúar svæðisins eru undir eftirliti á sjúkrahúsi og einn slökkviliðsmaður hefur hlotið minniháttar meiðsli. Bruninn á sér stað í Krokstadelva-hverfinu sem staðsett er í hlíð í nágrenni við skóglendi.
Ert þú á staðnum? Við tökum fagnandi á móti frásögnum, myndum og myndskeiðum á ritstjorn@visir.is
Eins og fram hefur komið hefur slökkvilið ekki náð tökum á brunanum og berst hann suður eftir, niður hæðina og læsa eldtungur sig í sífellt fleiri hús. Íbúum hefur verið skipað að yfirgefa svæðið. Þá er íbúum á nálægum svæðum leiðbeint að loka fyrir alla glugga og loftinntök en mikill, svartur reykur stígur upp frá brunanum.
Tilkynnt var um eldinn um klukkan 13:30 að íslenskum tíma. Óskað hefur verið eftir aðstoð slökkviliðs í öllum nálægum sveitarfélögum. Reykinn má sjá allt frá Ósló miðað við myndir á samfélagsmiðlum.
Ert þú á staðnum? Við tökum fagnandi á móti frásögnum, myndum og myndskeiðum á ritstjorn@visir.is