Rétti handtekins sakbornings til að njóta aðstoðar lögmannsins sem hann óskaði eftir var vikið til hliðar eftir að túlkur neitaði að túlka að henni viðstaddri. Nefnd um eftirlit með lögreglu segir ekkert þeirra skilyrða sem heimila takmörkun á vali verjanda hafa verið uppfyllt. Hún beinir tilmælum til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að gæta þessa réttar.
Þetta kemur fram í ákvörðun nefndarinnar nr. 56/2026 frá 9. október. Nöfn málsaðila eru ekki birt í ákvörðuninni.
Tilkynnt að finna þyrfti annan verjanda
Í kvörtun lögmannsins segir að skjólstæðingur hennar hafi verið handtekinn 12. maí og óskað eftir henni sem verjanda. Rannsóknarlögregla hafi haft samband og boðað frekara símtal um kvöldið vegna skýrslutöku svo hún gæti verið viðstödd.
Um klukkan 22:30 hafi henni hins vegar verið tilkynnt að finna þyrfti annan verjanda, annars myndi lögreglan gera það. Túlkurinn neitaði að túlka ef hún yrði viðstödd. Að sögn lögmannsins sagði rannsóknarlögreglumaðurinn að lögreglan hefði „hvorki tíma né þolinmæði“ til að finna annan túlk.
Lögmaðurinn sagði skjólstæðing sinn þá hafa verið sviptan frelsi í tæpar átta klukkustundir. Með hagsmuni hans í fyrirrúmi hefði hún ekki talið forsvaranlegt að tefja skýrslutökuna frekar með ágreiningi á vettvangi.
Hún lýsti þessu sem „alvarlegu fráviki frá réttindum sakbornings“ og sagði hann skýrt hafa óskað eftir verjanda sem áður hefði gætt hagsmuna hans og nyti trausts hans.
Ekki reynt að fá annan túlk
Rannsóknarlögreglukonan staðfesti að hafa óskað eftir öðrum lögmanni. Hún hafði pantað rúmenskan túlk hjá túlkaþjónustu. Starfsmaður þjónustunnar sagði að rúmenskir túlkar á þeirra vegum myndu ekki túlka að lögmanninum viðstaddri. Sakborningarnir voru fimm og skýrslutökurnar langar.
Hún spurði túlkinn sjálfan hvort hann gæti túlkað þrátt fyrir viðveru lögmannsins. „Ég fékk þvert nei frá túlkinum,“ sagði hún. Hann hefði áður lent í ágreiningi við lögmanninn í skýrslutökum og fyrir dómi.
Rannsóknarlögreglukonan sagði erfitt að fá rúmenska túlka og bað lögmanninn að senda fulltrúa. Lögmaðurinn var ósátt og taldi túlkinn vanhæfan, meðal annars vegna ungs aldurs og lélegs orðaforða.
Hún hafnaði orðalaginu sem haft var eftir henni: „Ég minnist þess ekki að hafa sagt að ég hefði ekki þolinmæði eða tíma til að standa í þessu, aðeins að klukkan væri orðin margt og erfitt væri að fá annan túlk.“ Ekki var reynt að fá annan túlk.
Samkvæmt lögreglugögnum sat annar lögmaður skýrslutökuna. Undirritað blað sýndi að hann hafði verið tilnefndur verjandi með samþykki kvartanda.
Sérhagsmunir túlks takmarka ekki réttinn
Nefndin taldi að „vandasöm staða“ hefði komið upp en réttur sakbornings til verjanda væri „grundvallarþáttur í réttlátri málsmeðferð“. Samkvæmt sakamálalögum beri að jafnaði að fara eftir ósk sakbornings um verjanda.
„Ljóst er að ekkert þeirra skilyrða sem takmarka rétt sakbornings til að velja sér verjanda voru uppfyllt,“ segir í ákvörðuninni. Nefndin benti jafnframt á „hið augljósa“: Rétturinn „verður aldrei takmarkaður af sérhagsmunum þriðja aðila, í þessu tilviki þess túlks sem neitaði að túlka í skýrslutöku með ákveðinn verjanda viðstaddan.“
Nefndin beindi því tilmælum til lögreglustjórans um að réttinum verði ekki vikið til hliðar á grundvelli annarra sjónarmiða en sakamálalög heimila.