Túlkun Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, þess efnis að ný skýrsla um upptöku evru hérlendis bendi til þess að kostnaður við krónuna sé meiri en ábatinn er röng.
Þetta segir Jón Helgi Egilsson, doktor í hagfræði, í grein sinni í blaði dagsins.
Fjallað var um skýrsluna í Morgunblaðinu um helgina en Daði sagði fyrir helgi að kostnaður við að halda úti krónu væri mikill og evran vænlegur kostur.
Jón bendir hins vegar á að hvergi í skýrslunni hafi farið fram kostnaðar- og ábatagreining, þar sem kostir og gallar krónunnar og evru hafi verið vegnir saman. Höfundar skýrslunnar hafi einungis fjallað um hvort taka ætti upp evru.
Þvert á móti hafi höfundar bent á að upptaka evru hefði kostnað í för með sér, auk þess sem Ísland myndi missa þann sveigjanleika sem fælist í sjálfstæðri peningastefnu.
Gagnrýnir Jón hvernig niðurstöðu skýrslunnar hefur verið miðlað.
„Það sem vekur mesta furðu er að meginniðurstaða opinberrar umræðu um evruskýrsluna er einmitt niðurstaðan sem höfundarnir setja ekki beint fram í skýrslunni,“ skrifar hagfræðingurinn.
Grein Jóns Helga má lesa á bls.15 í Morgunblaðinu í dag