Brautskráning Landbúnaðarháskóla Íslands fór fram í dag, 5. júní, á Hvanneyri við hátíðlega athöfn. Hópur öflugra nemenda kveður nú skólann og heldur út í atvinnulífið eða í frekara nám með dýrmæta þekkingu í veganesti.
Í tilefni dagsins sagði Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands:
„Í dag fögnum við mikilvægum tímamótum í lífi brautskráðra nemenda okkar. Þau ganga héðan með þekkingu, reynslu og eigin viskubrunn til að takast á við ný verkefni, ný tækifæri og nýja ábyrgð. Við hjá Landbúnaðarháskóla Íslands erum stolt af samfylgdinni og óskum þeim innilega til hamingju með áfangann. Megi þau ávallt vera glöð, forvitin og ganga hugrökk til verka.“
Af búfræðibraut útskrifuðust 19 nemendur. Rökkvi Hljómur Kristjánsson rakaði til sín verðlaunum fyrir frábæran árangur, en hann lauk búfræðiprófi með glæsilega einkunn, 9,41.
Fjölmargir nemendur luku B.S. prófi á ólíkum fræðasviðum skólans en það voru búvísindi, hestafræði, landslagsarkitektúr og skógfræði.
Öflugur hópur lauk líka framhaldsnámi á háskólastigi við athöfnina eða 9 nemendur í meistaranámi í skipulagsfræði. Öðru meistaranámi luku 14 nemendur og 3 nemendur luku doktorsnámi.
Einnig voru veitt sérstök verðlaun fyrir framlag til skólasamfélagsins. Hugrún Lilja Pétursdóttir hlaut verðugt klapp og viðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu félags-, kynningar- og framfaramála skólans á skólaárinu 2025-2026.
Að lokum var veittur styrkur úr Framfarasjóði Ingibjargar Guðmundsdóttur og Þorvaldar Guðmundssonar í Síld og fisk. Styrkþegi ársins er Sunna Þórarinsdóttir, sem hlaut 300 þúsund króna styrk vegna meistaranáms síns í búvísindum.