Nýjar Krispí Rískúlur eru nú komnar í verslanir landsins í takmörkuðu upplagi yfir sumarmánuðina. Þær eru hugsaðar sem sumarnammi sem hentar jafnt í bústaðaferðir, útilegur, ferðalög og aðrar sumarsamverur, hvort sem sest er í stofuna að horfa á HM eða pakkað í ferðatöskuna á leið erlendis.
„Nýju Krispí Rískúlurnar eru með stökkum sykurhjúp sem gefur þeim aukið kröns og gerir það erfitt að leggja frá sér pokann þegar hann hefur verið opnaður. Áferðin er nánast ávanabindandi,“ segir Helena Gunnars Marteinsdóttir, markaðsstjóri Freyju.
Hvaða bragð er af þeim?
Að sögn Helenu kom það skemmtilega á óvart í bragðprufum að fólk virtist ekki alveg sammála um hvernig lýsa ætti bragðinu.
„Það sem kom skemmtilega á óvart við Krispí Rískúlurnar var að enginn virðist alveg sammála um bragðið. Í bragðprufum nefndu margir karamellu, aðrir vanillu, sumir mjólkursúkkulaðikex eða jafnvel smá kókoskeim. Kannski liggja töfrarnir einmitt þar, að hver og einn virðist finna sína eigin útgáfu af bragðinu,“ segir Helena.
Komið í verslanir svo nú er bara að hafa gaman
Krispí Rískúlur eru nú fáanlegar í öllum helstu verslunum landsins, en aðeins í takmörkuðu upplagi yfir sumarmánuðina.
„Sælgætisverksmiðjan Freyja var stofnuð árið 1918 og er elsta starfandi sælgætisgerð landsins. Fyrirtækið framleiðir meðal annars vörur undir merkjunum Rís, Draumur, Djúpur, Mix og Freyju súkkulaði. Rís-stykkið kom upprunalega á markað árið 1945 og hefur verið vinsælt síðan.
Nýsköpun og vöruþróun er ætlað að styðja við áframhaldandi vöxt. Markmiðið er að vörunýjungar séu hluti af fleiri gleðistundum og góðum minningum hjá landsmönnum. Nýju Krispí Rískúlurnar eru liður í þeirri þróun.“

