Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur sett samruna Paramount Pictures og Warner Bros. Discovery á ís tímabundið. Fylking tólf ríkja í Bandaríkjunum, sem leidd er af Kaliforníu, hefur lagst gegn samrunanum. Ríkin segja hann brjóta gegn samkeppnislögum og til þess gerðan að leiða til hærra verðs og færri kvikmynda og sjónvarpsþátta.
Variety greinir frá.
Fyrirtækin áfram aðskilin á meðan skorið er úr um málið
Araceli Martinez-Olguin alríkisdómari féllst á að setja 14 daga lögbann á samrunann eftir að hafa hlýtt á rök beggja aðila á föstudag. Paramount hafði áður samþykkt að ljúka ekki viðskiptunum fyrir 22. júlí.
„Málflutningur ríkjanna sem sækja málið sýnir að minnsta kosti fram á að alvarlegum spurningum um málið er enn ósvarað. Það styður þá ákvörðun að úrskurða lögbann til bráðabirgða,“ skrifar Martinez-Olguin í úrskurði um lögbannið. Hann bendir á að Paramount hafi áður sagt að það myndi ekki hljóta skaða af verði kaupum fyrirtækisins á Warner Bros. Discovery frestað til september.
„Paramount og Warner Bros. verða áfram aðskilin, hagkvæm fyrirtæki sem eiga í samkeppni á markaðnum á meðan félögin bíða eftir að dómstólar skeri úr um málið. Vægi efnahagslegra áhrifa og hagsmuna almennings af framfylgd samkeppnislaga eru rök fyrir því að fallist sé á lögbannið.“
„Með málsókn okkar berjumst við fyrir frjálsum og réttlátum markaði“
Rob Bonta, dómsmálaráðherra Kaliforníu, fagnaði úrskurði dómarans og segir hann mikilvægan fyrsta sigur í máli þeirra til að tryggja að þessi risasamruni líti aldrei dagsins ljós.
„Sagan sýnir hvað gerist þegar fámennur hópur fær gríðarleg völd yfir mörkuðum sem skipta sköpum í lífi Bandaríkjamanna: færri tækifæri fyrir fleira fólk, lakari vörur og verri þjónusta fyrir alla. Með málsókn okkar berjumst við fyrir frjálsum og réttlátum markaði og blómlegum kvikmynda- og sjónvarpsiðnaði sem þjónar jafnt skapandi fólki sem áhorfendum. Við erum fullir eldmóðs, höfum lögin okkar megin og hlökkum til að halda áfram að reka málið.“
Segir samrunann löglegan og hvatningu til samkeppni
Talsmaður Paramount sagði fyrirtækið þakklátt fyrir skjótan úrskurð dómstólsins varðandi kröfuna um bráðabirgðalögbann.
„Líkt og samkomulagið um tímaáætlun sem við vorum tilbúin að gangast undir, þá viðheldur þetta bráðabirgðalögbann óbreyttu ástandi á meðan dómstóllinn leggur mat á samkeppnismálin. Við erum þess fullviss að sönnunargögnin muni sýna að samkeppnisrök dómsmálaráðherra fylkjanna eigi sér enga stoð í veruleikanum. Þessi samruni er löglegur, hvetur til samkeppni og mun gagnast neytendum, höfundum, starfsfólki og afþreyingariðnaðinum. Við munum halda áfram að verja viðskiptin af krafti og hlökkum til málflutnings um efnishlið málsins.“
Paramount hefur þrýst á að málflutningur um lögbannið fari fram með lifandi vitnum. Fyrirtækið vonast til að fá úrskurð um lögbannið í byrjun september. Hafi viðskiptunum ekki verið lokið fyrir 30. september mun Paramount byrja að skulda fjárfestum Warner Bros. milljónir dollara á dag.