Greint er frá starfslokum Ólafs Barkar á Instagramsíðu Hæstaréttar. Þar kemur meðal annars fram að hann hafi lokið embættisprófi frá Háskóla Íslands árið 1987 og að við skipun hafi hann verið dómstjóri Héraðsdóms Suðurlands.
„Þetta var komið gott,“ segir Ólafur Börkur í samtali við Vísi. Hann segist hafa slegið því upp hversu mörg mál hann hefur dæmt og sér hafi brugðið.
„Allt of mikið. Ég hef nú trú á því að ég muni nýtast eitthvað áfram á sviði lögfræðinnar. Ég er að kenna við Háskólann í Reykjavík og svo kemur bara í ljós hvað ég mun gera meira af því og hvernig.“