Úkraínuher gerði drónaárásir á olíuinnviði í Pétursborg í morgun stuttu áður en alþjóðleg efnahagsráðstefna var að hefjast í miðborginni. Ráðstefnan hefur verið kölluð „Davos Pútíns“. Reyk lagði yfir borgina vegna elds í olíuinnviðum eftir árásirnar.
Tugum flugferða um flugvöll Pétursborgar var frestað eða aflýst í morgun vegna drónanna. Úkraínuher hefur síðustu vikur hert árásir á olíuinnviði í Rússlandi. Zelensky Úkraínuforseti staðfesti í morgun að Úkraínuher hafi gert árásir á olíuinnviði í Pétursborg.