mengun er nú greinileg á stóru svæði sem nær frá Detroit og Toronto til New York borgar auk þess sem íbúar á Nýja Englandi hafa einnig orðið fyrir óþægindum af völdum reyksins. Aðvaranir um slæm loftgæði eru víða í gildi og fjölda viðburða sem halda átti utanhúss í dag og næstu daga hefur verið aflýst.
Fremur litlar skemmdir hafa orðið enn sem komið er ef undan eru skilin heimkynni ættbálks frumbyggja í Kanada á afskekktu svæði en ættbálkurinn þurfti að flýja eldana í heild sinni og segir höfðingi ættbálksins að öll húsin í þorpinu hafi brunnið til grunna.
Einnig komust lestarstjórar í hann krappann þegar lest þeirra var ekið inn í brennandi eldhaf. Þá sakaði þó ekki.