Bandarískar hersveitir handtóku Maduro og Flores á heimili þeirra í Caracas, höfuðborg Venesúela, þann 3. janúar síðastliðinn. Þau voru í kjölfarið flutt til New York-borgar en hjónin eru ákærð af bandarískum yfirvöldum fyrir vopna- og fíkniefnalagabrot.
Dómari ákvað í dag að réttarhöldin hefjist þann 1. júní 2027 en hjónin neita bæði sök í málinu.
Fyrir utan réttarsalinn fordæmdu mótmælendur hernaðaraðgerð Bandaríkjanna sem leiddi til handtöku Maduros. Þeir héldu meðal annars á skiltum sem á stóð „Frelsið Maduro forseta“ og veifuðu þjóðfána Venesúela.
Einnig voru áhorfendapallar dómssalsins þétt setnir áhorfendum en sumir þeirra hafi beðið tímunum saman eftir því að sjá Maduro í eigin persónu, segir í umfjöllun BBC.