Peptíð, samheiti yfir stuttar keðjur af amínósýrum og eru nokkurs konar uppbyggingarefni próteina í líkamanum, eru í síauknum mæli notuð af fólki hér á landi til útlitsfegrunar.
Viktor Snær Oliversson, einkaþjálfari og vaxtarræktariðkandi, segir áhuga sinn á peptíðum hafa kviknað út frá peptíðinu Retatrutide, oft kallað Reta, sem hefur svipaða virkni og þyngdarstjórnunarlyfið Ozempic.
„Retatrutide er svona sterkasta og öflugasta peptíðið. Mig langaði að prófa Retatrutide í rauninni bara út frá Ozempic, vegna þess að þegar ég er svangur bitnar það á öllum í kringum mig,“ segir Viktor en hann fylgir ströngu matarplani árið um kring.
Prófað þau flest
„Ég hugsaði að ef ég gæti fundið leið til að vera ekki svangur og pirraður þá væri ég til í að prófa það. Reta er bara Ozempic á sterum,“ bætir hann við.
Spurður hvaða önnur peptíð hann notist við segist hann hafa prófað þau flest og að fyrir hann virki þau vel sem einhvers konar stuðningur við líkamann vegna þeirra vandamála sem stundum fylgi steranotkun.
„Ég nota stera og þetta er í rauninni bara stuðningur, smá bara eins og vítamín, til að hjálpa líkamanum að ráða við þá,“ segir Viktor. Hann segist einnig nota ákveðna tegund peptíða til að hjálpa sér við að halda líkamanum heilum í því æfingaálagi sem fylgi vaxtarrækt.
„Ég myndi segja að peptíðin séu bara ákveðin bylting í bransanum,“ segir hann og bætir svo við að „allir og amma þeirra“ noti Reta í dag.
Lestu umfjöllunina í heild sinni:
