Lögreglan telur ekki að hrina innbrota í fyrirtæki og á heimili í miðborg Reykjavíkur tengist skipulagðri brotastarfsemi heldur sé þetta frekar það sem hún kallar tilviljanakennd innbrot.
Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í þættinum Fram undan á Rás 2, að það hefði alltaf þekkst að toppar kæmu í innbrotum. Slíkt væri í gangi nú.
„Það er farið inn að næturlagi, stolið úr sjóðsvélum eða einhverjum verðmætum úr heimahúsum til að koma í sölu.“
Lögreglu grunar að sömu einstaklingar tengist heimahúsunum. Einn var úrskurðaður í gæsluvarðhald í gær vegna tengsla við töluverðan fjölda þessara innbrota.
„Langflest þessara brota hafa átt sér stað, ef við eigum að draga einhverja línu, vestan við Snorrabraut, á miðbæjarsvæðinu. Það er svæðið sem þetta hefur verið að gerast á og skiptingin á milli heimila og fyrirtækja, ég er ekki alveg með það í kollinum en ég gæti trúað að það væru aðeins fleiri fyrirtæki en heimili líka.“
Óvenju mikið hefur verið um innbrot í júlí. Búið er að tilkynna um 60 innbrot.
„Fjöldinn sem var kominn inn á okkar borð eftir fyrstu tvær vikurnar í júlí var á pari við það sem var allan júní,“ segir Ásmundur.
Þetta er þó alls ekki einsdæmi. Ásmundur segir að lögregla hafi áður orðið vör við toppa. Hann segir að það hafi alltaf þekkst að einstaklingar sem glími við fíkn stundi afbrot til að verða sér úti um næsta skammt. Lögreglu hefur ekki alltaf gengið nógu vel að taka slíka einstaklinga og koma þeim í gæsluvarðhald, líkt og gert var í gær, segir Ásmundur. Það ræðst oft af því hvað er að gerast hverju sinni og lögregla þurfi oft að forgangsraða því hverjir séu úrskurðaðir í gæsluvarðhald. „Ekki að ég sé neitt að gera lítið úr alvarleika þessara brota.“
Ásmundur hvetur fólk til að ganga vel frá heimilum sínum þegar það fer í frí, fylgjast með ferðum fyrir nágranna sína.