Forseti Frakklands, Emmanuel Macron, fordæmdi í dag mistök lögreglunnar í aðdraganda morðs á 11 ára stúlku. Í ljós hefur komið að hinn grunaði í málinu hafði nokkrum sinnum áður verið sakaður um að kynferðisbrot gegn börnum. Macron sagði ljóst að eitthvað mikið hafi farið úrskeiðis við rannsókn málanna og að það væri óásættanlegt.
11 ára stúlka, sem kölluð er Lyhanna í frönskum fjölmiðlum, týndist fyrir viku nálægt bænum Fleurance í suðvesturhluta Frakklands. Síðast sást til hennar þar sem hún fór í bíl með karlmanni. Lík sem talið er vera af henni fannst í 15 kílómetra fjarlægð frá bænum í gær í korngeymslu sem ekki hefur verið í notkun síðustu ár.
Maðurinn sem er í haldi lögreglu, grunaður um morðið, er 41 árs og er faðir vinkonu Lyhanne. Hann hefur áður verið tilkynntur til lögreglu og sakaður um kynferðisbrot gegn börnum. Rannsóknir á þeim málum ýmist sigldu í strand eða voru felldar niður.
Maðurinn áður tilkynntur til lögreglu fyrir nauðganir
Árið 2017 var maðurinn sakaður um að hafa nauðgað 17 ára dóttur konu sem hann var í sambandi við. Málið var fellt niður 2018 eftir að stúlkan sagðist hafa veitt samþykki sitt.
Árið 2022 var maðurinn sakaður um að hafa nauðgað barni, yngra en 15 ára, á heimili sínu. Málið var fellt niður 2024 vegna skorts á sönnunargögnum. Þriðja málið kom upp í ágúst í fyrra. Móðir stúlku, sem er fædd 2014, sakaði manninn um að hafa nauðgað barninu. Lögreglan hafði þó ekki enn yfirheyrt manninn vegna þess máls þegar Lyhanna hvarf.
Forsætisráðherra Frakklands, Sebastien Lecornu, tilkynnti ráðherrum dómsmála, innanríkismála og fjármálaráðherra að hann væri sleginn yfir málinu. Hann hefur óskað eftir að fá fyrstu niðurstöður stjórnsýslurannsókna á málunum innan tveggja vikna.
Bæjarbúar í áfalli
Bæjarstjóri Puycasquier, þar sem líkið fannst, segir að allir bæjarbúar séu í áfalli. „Þetta er hræðilegt og samfélagið er verulega slegið og það er ég líka,“ hefur AFP fréttaveitan eftir honum. Bæjarstjóri Fleurance, Gregory Bobbato, sagði í gær að eitthvað mikið hafi farið úrskeiðis við rannsókn málanna.
Þá hefur AFP eftir Denis Roth-Fichet, sem leiðir sjálfstæða nefnd gegn kynferðisofbeldi gegn börnum, CIVIISE, að málið sé birtingarmynd af mun stærri vanda. Rannsóknir séu felldar niður í þremur af hverjum fjórum málum þar sem ásakanir eru um kynferðisbrot gegn börnum. Aðeins 7 prósent tilkynninga um kynferðisbrot gegn börnum endi með sakfellingu og aðeins 3 prósent nauðgana.