Öll málning var þrifin af tröppunum skömmu eftir að málað var yfir regnbogafánann í íslensku fánalitunum. Prófílmynd Grafarvogskirkju var uppfærð í síðustu viku og sýnir nú regnbogalitaðar tröppurnar, sem sumir virðast hafa skilið sem svo að búið væri að mála þær aftur. Þær eru hins vegar ennþá steinsteypugráar.
Greint var frá því í dag að málið yrði rætt á sóknarnefndarfundi en ýmis „praktísk atriði“ hefði þurft að ræða að sögn Örnu Ýrar Sigurðardóttur, sóknarprests í Grafarvogskirkju.
Hvenær þær verði málaðar er „eitt af þessum málum sem á eftir að útfæra“ en ýmsar hugmyndir hafi komið fram á fundinum. „Það verður bara gert þegar færi gefst, það er náttúrulega ekki beinlínis búið að vera veður til þess núna.“
Hinsegin fáninn verður ekki málaður á gangflöt trappanna, vegna hálkuvarna, heldur lóðrétt framan á þær, segir Arna. „Við þurfum aðeins að fara í smá hönnunarvinnu og svoleiðis en já, þær verða málaðar aftur.“
Málað var yfir regnbogafána á tröppum Grafarvogskirkju í íslensku fánalitunum í skjóli nætur, fyrr í mánuðum.
Þetta sé í þriðja skiptið sem skemmdarverk hafi verið framin fyrir framan kirkjuna. „Í hin tvö skiptin máluðum við einfaldlega yfir en þetta skiptið er búið að vera okkur ansi dýrkeypt.
Þetta skemmdarverk bara gerði það að verkum að við þurftum að leggja í heilmikinn kostnað við að hreinsa tröppurnar og við bara óskum nú bara eftir því að ef fólk vill styðja þennan málstað þá má hafa samband við okkur í Grafarvogskirkju og hjálpa okkur að dekka þann kostnað.“