Sam Eyde-framhaldsskólinn í Arendal í Agder-fylkinu í Suður-Noregi liggur undir ámæli fyrir að hafa dregið regnbogaflaggið, hið alþjóðlega tákn hinsegin fólks, niður meðan á viku fjölbreytileikans stendur í skólanum og þykir gagnrýnendum sú ákvörðun bera lítinn vott um að margbreytileikanum sé fagnað í raun.
„Mér þykir það mjög undarlegt að skólinn hafi tekið þessa ákvörðun. Ég hugsa með mér að það sendi röng skilaboð,“ segir Tuva Grestad, nemandi við skólann, í samtali við norska ríkisútvarpið NRK. „Þegar regnbogafáninn stendur fyrir fjölbreytileika og meðveru, og að fólk fái að vera það sjálft, er þetta hreinn heigulsháttur,“ segir nemandinn að auki.
Flagglaus fánastöngin geri ekki annað en að senda nemendum skýr skilaboð.
Grestad kveðst hafa fengið upplýsingar um að flaggað verði á ný með haustinu en segir fjarveru regnbogafánans yfir þann tíma sem Pride-hátíðir eru haldnar um allan heim auðveldlega geta sært fjölda nemenda. „Að draga fánann að húni er ekki mikið verk en hefur mikla þýðingu fyrir suma,“ segir hún.
Of ósveigjanleg ákvörðun
Line Marie Poppe skólastjóri kveðst glöð yfir að ákvörðunin hafi vakið umræðu og segir við NRK að skólinn hafi tekið ákvörðun þegar í fyrravor og ákveðið að fáninn yrði við hún meðan hátíðin Skeive Sørlandsdager stendur yfir í haust en hún er hátíð hinsegin fólks í Suður-Noregi. Tekur Poppe, sem nýlega tók við stöðu sinni, það fram að hún hafi ekkert á móti Pride-hreyfingunni eða fánanum sem slíkum. Hún verði hins vegar að fylgja formlegum ákvörðunum skólans.
„Það er kannski lítið mál að flagga fánanum en ég tel mikilvægt að því sé slegið föstu hvers vegna við kjósum að gera það,“ segir skólastjórinn.
Kjell William Jensen, formaður nemendaráðs við skólann, telur ákvörðunina of ósveigjanlega og segir að einmitt nú ætti regnbogafáninn að blakta við hún. „Mér finnst að það að flagga regnbogafánanum sýni að hér eru allir velkomnir, sama hvern þú elskar. Það er mikilvægt,“ segir Jensen sem kveðst ekki hafa séð annað en að starfsfólk skólans og meirihluti nemenda vilji fánann á stöng.