Dómsmálaráðuneytið boðar hertar aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi. Ráðuneytið birti í dag frumvarp til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpið kveður á um tólf breytingar á refsilöggjöf, réttarfarsreglum og lögreglulögum.
Í tilkynningu stjórnarráðsins segir að þetta sé í fyrsta sinn frá því að ákvæðið um skipulagða brotastarfsemi var lögfest sem ráðist sé í jafn markvissar breytingar. Frumvarpið verður lagt fram á komandi þingvetri.
20 skipulagðir brotahópar starfandi á Íslandi
Samkvæmt skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra frá því í nóvember eru um 20 skipulagðir brotahópar starfandi hér á landi. Þeir eru misskipulagðir og misfjölmennir en allir með það markmið að hagnast á afbrotum.
Umfang starfseminnar hefur aukist á undanförnum árum og hún tekið á sig flóknari og alvarlegri mynd með átökum milli hópa og ofbeldis- og vopnalagabrotum.
Refsingar hertar ef börn eru nýtt í brotastarfsemi
Breytingunum tólf er ætlað að efla baráttuna gegn skipulagðri brotastarfsemi. Verði frumvarpið samþykkt í núverandi mynd verða refsingar þyngdar, heimildir lögreglu rýmkaðar og stjórnvöldum gert betur kleift að leggja hald á ólögmætan ávinning án sakfellingar.
Refsingar verða hertar ef börn eða ungmenni eru nýtt til að fremja alvarleg brot og hámarksrefsing fyrir skipulagða brotastarfsemi verður þyngd úr fjórum árum í átta.
Þá verður heimild til að halda sakborningum í gæsluvarðhaldi í flóknum og umfangsmiklum sakamálum lengd úr 12 vikum í 6 mánuði og lögreglu gert kleift að ráðast í tilteknar rannsóknaraðgerðir áður en dómsúrskurður liggur fyrir.
Skipulögð brotastarfsemi verður skilgreind betur og hugtakið víkkað út í takt við breytta tíma.