Á vef Sólmyrkvans 2026 sem Sævar Helgi Bragason heldur úti segir að hægt sé að kaupa sæti í flugi sem bjóði fólki upp á að upplifa lengsta almyrkva á jörðinni. Tvö sæti eru til sölu, annað á 380 þúsund krónur og hitt á 660 þúsund krónur.
Verðmunurinn felst í staðsetningu sætanna í vélinni, segir Bandaríkjamaðurinn John Beattie. Hann hefur séð þó nokkra sólmyrkva um borð í flugvélum, allt frá eins hreyfla vélum til stórra Boeing-breiðþota.
„Annað sætið er vinstra megin í vélinni, sem er hliðin sem snýr frá sólmyrkvanum. Dýrara sætið snýr beint að sólmyrkvanum,“ segir John Beattie. Þeir sem sitji í ódýrara sætinu verði að gera sér að góðu að horfa yfir öxlina á næsta manni.
Sætin séu hverrar krónu virði.
Flogið í beinni línu í suður
Áætlað er að flugið taki um eina klukkustund og 45 mínútur í heildina en flogið verður í átt að Grænlandi. Síðan verður tekin U-beygja og flogið eftir beinni línu í suður meðfram almyrkvaslóðinni.
John Beattie er reynslubolti í að elta sólmyrkva, bæði á landi og lofti.
„Það er svo sérstök tilfinning að vera fyrir ofan og fylgjast með sólmyrkvanum,“ segir John og ítrekar hve merkilegt sé að verða vitni að þessu fyrir ofan skýin, jafnvel í 30 þúsund feta hæð.
Lengsti almyrkvinn
Flugvélin er af gerðinni King Air í eigu Norlandair. Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu hefur verið rætt við John um flugferðina í nærri tvö ár. Hinir sjö farþegarnir eru á vegum Johns og hafa allir áður upplifað sólmyrkva úr lofti.
Ef allt gengur að óskum þá geta farþegar í vélinni dáðst að myrkvanum í tvær mínútur og fjörutíu sekúndur, sem er meiri tími en fæst til þess annars staðar í heiminum. Lengsti almyrkvi á landi á jörðinni er 2 mínútur og 13 sekúndur og verður sjáanlegur frá Látrabjargi á Vestfjörðum.