Rafmagnslaust er í Úlfarsárdal í Grafarholti, Grafarvogi, Mosfellsbæ og á Kjalarnesi. Greint er frá þessu í tilkynningu á vef Veitna. Rafmagnsleysið getur haft áhrif á fjarskipti og afhendingu á heitu vatni.
„Unnið er að því að greina bilun og vonast er til að rafmagn verði komið á sem fyrst, en bilunin er inni í aðveitustöð við Korpu. Við munum uppfæra á vef eftir því sem fram vindur,“ segir þar.
Í tilkynningu á vef Landsnets segir að spennir 2 í tengivirkinu Korpu hafi leyst út.
Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna, segir að rafmagni verði komið á eins fljótt og auðið er.
„Við erum á leiðinni á staðinn til að laga þetta. Þetta getur líka haft áhrif á afhendingu á heitu vatni, sérstaklega uppi í hæðum,“ segir Silja. Vegna þess er ráð að passa að skrúfað sé fyrir heitt vatn til að draga úr líkum á tjóni og að fara varlega við notkun á heitu vatni eftir að rafmagn kemur aftur á.
Rafmagnslaust varð í Mosfellsbæ og Grafarvogi 14. ágúst vegna bilunar í háspennustreng. Silja segir of snemmt að segja til um það hvort rafmagnsleysið sem nú er sé vegna sams konar bilunar.
Fréttin hefur verið uppfærð.