Landsnet segir að spennir í tengivirkinu Korpu hafi leyst út með áðurnefndum afleiðinum. Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna, segir að nánar verði rýnt í orsök bilunarinnar í framhaldinu.
Rafmagnstruflunin gat haft áhrif á fjarskipti og afhendingu á heitu vatni í efri byggðum þar sem vatni er dælt upp. Fréttastofu bárust ábendingar um truflanir á netsambandi um farsímakerfi á níunda tímanum.
Handboltinn í basli
Rafmagnsleysið hafði meðal annars áhrif á starfsemi verslunar Krónunnar í Mosfellsbæ og fólk sem fylgdist með leik Liverpool og Ipswich í ensku úrvalsdeildinni í Egilshöll.
Þá var leikur Aftureldingar og Víkings í 1. umferð Olís-deildar karla í handbolta í gangi í íþróttahúsinu að Varmá þegar ljósin slokknuðu skyndilega.
Fréttin hefur verið uppfærð.