Ráðherra bandaríska sjóhersins John C. Phelan hefur lokið störfum samkvæmt tilkynningu frá bandaríska varnarmálaráðuneytinu Pentagon.
Ráðherra sjóhersins er yfirmaður sjóhersins og heyrir undir varnarmálaráðherrann Pete Hegseth. Ekki hefur verið gefin ástæða fyrir brotthvarfi Phelan úr starfi, en næstráðandi Phelan, Hung Cao, hefur verið skipaður ráðherra bandaríska sjóhersins.
Phelan er einn margra yfirmanna í bandaríska hernum sem hefur verið vikið úr starfi undanfarið. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar CNN var það sameiginlegt álit Hetseth og Donald Trump Bandaríkjaforseta að þörf væri á nýjum yfirmanni sjóhersins.
Tímasetning brottrekstursins er sögð athyglisverð þegar bandaríski sjóherinn er með aðgerðir og herkví í Hormússundi. Trump er sagður vonsvikinn með hversu langan tíma skipasmíði og uppbygging sjóhersins hefur tekið.
Bandaríkjaforseti skipaði Phelan sem ráðherra bandaríska sjóhersins á síðasta ári. Phelan hefur enga reynslu af bandaríska hernum og starfaði áður í viðskiptum. Hann og eiginkona hans söfnuðu milljónum dollara fyrir kosningaherferð Trumps fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum.