Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefur sent frá sér tilkynningu þar sem Ráðgjafaráð RIFF, sem skipað er fagfólki í fremstu röð úr ýmsum skapandi greinum, ekki síst úr heimi sviðslista og kvikmyndanna, er kynnt til leiks.
Ráðið skipa þau Ingvar E. Sigurðsson, Elísabet Ronaldsdóttir, Andri Snær Magnason, Yrsa Roca Fannberg, Margrét Örnólfsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Guðmundur Arnar Guðmundsson. Þá hefur Jóhann G. Jóhannsson tekið sæti í stjórn RIFF.
Í tilkynningunni segir meðal annars að hlutverk ráðsins sé að styrkja og styðja við starfsemi RIFF með því að vera til ráðgjafar og hafa þannig áhrif á dagskrá og starfsemi hátíðarinnar. Um leið getur starfsfólk hátíðar leitað til ráðsmanna eftir sérþekkingu, ráðum eða hugmyndum eða borið undir þá dagskrá og fengið álit þeirra.
Jafnframt er ráðsmönnum frjálst og þeir hvattir til að koma með hugmyndir að dagskrá eða öðru því sem gæti orðið starfsemi Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík til framdráttar.
Heillaspor fyrir hátíðina
„Það er okkur hjá kvikmyndahátíð sönn ánægja að fá þennan glæsilega hóp fagfólks með í ráðgjafaráð RIFF,“ segir Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF.
„Við erum virkilega spennt fyrir þessu samstarfi og hlökkum mikið til að vinna með þessu reynslumikla hæfileikafólki. Ég er sannfærð um að fjölbreytt sérþekking þeirra og ómetanleg reynsla á eftir að gagnast RIFF með margvíslegum hætti og að stofnun ráðsins verði mikið gæfuspor fyrir Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík.“
Hrönn segir sérstaklega spennandi að fá svona sterkan hóp til að móta kvikmyndahátíðina áfram.
„Við sjáum þetta fyrir okkur sem vettvang fyrir opið samtal, hugmyndir og innblástur og erum mjög spennt að fá þeirra sýn inn í það sem við erum að gera,“ bætir Hrönn við.
Jóhann G. tekur sæti í stjórn RIFF
Þá býður Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík velkominn nýjan mann inn í stjórn RIFF, Jóhann G. Jóhannsson, fv. framkvæmdastjóra hjá Alvotech og einn stofnenda fjárfestingafélagsins Aztiq.
Hann lét nýlega af störfum hjá fyrirtækjunum en hann hefur verið meðal lykilstjórnenda hjá samstæðunni í nærri tvo áratugi. Jóhann er hagfræðingur að mennt og starfaði áður meðal annars sem framkvæmdastjóri hjá Kaupþing í Stokkhólmi og sem yfirmaður áhættu- og fjárstýringar hjá Icelandair Group.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík fer fram í Háskólabíói 24.september til 4. október nk.

