Huldumaður skeit á bíl Ragnars Egilssonar, íbúa við Álfhólsveg í Kópavogi á hrekkjavökunni. Hefur þetta gerst í nokkur skipti á undanförnum árum og er mikil ráðgáta hver sé á ferð.Í myndbandi sem Ragnar deildi á Youtube og Facebook má sjá upptöku úr öryggismyndavélakerfi hans. Um klukkan 5:30 aðfaranótt hrekkjavöku, þann 31. október, mætir grímuklæddur maður inn á lóðina hjá honum.Hann lítur í kringum sig, girðir svo niður um sig brækurnar og virðist hafa hægðir vinstra megin á framhlið bíls Ragnars. Eða að minnsta kosti gera tilraun til þess.
Ráðgátan mikla í Kópavogi - Grímuklæddur maður kúkaði á bíl Ragnars á hrekkjavökunni