Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir að stríðinu í Úkraínu muni ekki ljúka fyrr en Rússar hafi náð markmiðum sínum.
„Stríðsátökum mun ljúka einn daginn, reiknum við með. Þeim mun án efa ljúka þegar við höfum náð markmiðunum sem við höfum sett okkur,“ sagði Pútín á efnahagsráðstefnu í Sankti Pétursborg.
Rússar hafa krafist yfirráða yfir Donbas-héraði í austurhluta Rússlands, auk þess sem þeir vilja að Úkraína sæti miklum pólitískum og hernaðarlegum hindrunum.
Ekki tímabært að funda með Selenskí
Pútín sagði einnig að hann sæi „enga ástæðu“ fyrir fundi með Volodimír Selenskí Úkraínuforseta fyrr en friðarsamningur hefði náðst.
„Ég sé enga ástæðu til að funda. Úkraínumenn vilja eðlilega stöðva framgang hersveita okkar. Það er allt og sumt. Og við þurfum á samkomulagi að halda,“ sagði Pútín, einum degi eftir að Selenskí sendi frá sér opið bréf þar sem hann óskaði eftir leiðtogafundi.
„Látum sérfræðingana um vinnuna, að þróa einhverjar lausnir og síðan getum við hist,“ bætti Pútín við.
