Þetta fullyrti hann á blaðamannafundi í gærkvöldi, að því er fram kemur í umfjöllun Reuters. Þar sagðist hann ekki vera í vafa yfir því að Úkraínumenn myndu tapa stríðinu þó hann væri ekki tilbúinn til þess að fullyrða nokkuð um hvenær það myndi gerast.
Á blaðamannafundinum fullyrti Pútín að rússneskar hersveitir væru ekki aðeins að sækja fram, heldur gerðu það með auknum hraða. Að hans sögn náðu Rússar yfirráðum yfir 270 ferkílómetrum og fimmtán bæjum í Donetsk-héraði í austurhluta Úkraínu í ágúst.
Pútín fullyrti ennfremur að tveir stórir hópar úkraínskra hermanna hefðu verið umkringdir. Annar þeirra á að samanstanda af 4500 til 4800 hermönnum og hinn af allt að tvö þúsund hermönnum, að því er Reuters greinir frá. Miðillinn tekur fram að ekki hafi reynst unnt að sannreyna staðhæfingar rússneska forsetans.
Að sögn Pútíns halda rússneskar hersveitir áfram framsókn sinni í átt að borgunum Slovjansk og Kramatorsk. Hann sagði einnig að Rússar væru að undirbúa umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu. Forsetinn tiltók þó að Rússar væru reiðubúnir til samninga um frið en að þær yrðu að leiða til einhvers.
Þá gagnrýndi hann orð Volodomír Selenskí Úkraínuforseta um að flugfélög sem enn nýttu sér rússneska lofthelgi ættu að gæta að sér. Sagði hann að Rússar gengju ekki til samninga við „hryðjuverkamenn.“