Hún var aðeins 17 ára þegar hún skaust upp á stjörnuhimininn með einum stærsta poppsmelli fyrsta áratugar aldarinnar.Tónlistarmyndbandið vakti gríðarlega athygli og olli miklu fjaðrafoki, en söngkonan varð heimsfræg nánast á einni nóttu. Nú, 24 árum síðar, er hún sögð nánast óþekkjanleg á nýlegum myndum sem hún hefur birt á samfélagsmiðlum.Um er að ræða rússnesku söngkonuna Juliu Volkovu, sem sló í gegn ásamt Lenu Katinu í poppdúettinum t.A.T.u. með laginu All The Things She Said árið 2002. Lagið fór á topp vinsældalista víða um heim, meðal annars í Bretlandi.
Poppstjarnan óþekkjanleg 24 árum eftir að hún sló í gegn