Argentínski knattspyrnustjórinn Mauricio Pochettino gæti tekið við stjórnartaumunum hjá ítalska A-deildarfélaginu AC Milan í sumar.
Það er BBC sem greinir frá þessu en Pochettino, sem 54 ára gamall, er núna þjálfari bandaríska karlalandsliðsins.
Samningur hann við bandaríska knattspyrnusambandið rennur út eftir heimsmeistaramótið 2026 sem lýkur seinni partinn í júlí.
Pochettino gæti þá snúið aftur í félagsliðaþjálfun eftir að hafa stýrt landsliði Bandaríkjanna frá árinu 2024.