Umræðan hefur oft á tíðum verið hatrömm og báðar fylkingar sakað hina um upplýsingaóreiðu. Sumir vilja fá að „kíkja í pakkann“, á meðan aðrir segja deginum ljósara hvað hann hefur að geyma.
Þá hafa deilurnar ekki síður snúið að því hvort Íslendingar eigi erindi í Evrópusambandið, um kosti þess og galla, jafnvel þótt aðeins sé kosið um áframhald viðræðna í ágúst.
„Staðreyndin er þessi: Verði niðurstaðan já, opnast dyr að samningaborði. Ekkert annað,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í aðsendri grein á Vísi.
Meira að segja þetta er umdeilt.
Rætt verður um þjóðaratkvæðagreiðsluna í Pallborðinu í dag, sem sýnt verður í beinni útsendingu á Vísi klukkan 13.
Gestir Pallborðsins að þessu sinni verða Hjörtur J. Guðmundsson alþjóðastjórnmálafræðingur, Gréta María Grétarsdóttir verkfræðingur, Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður og Gauti B. Eggertsson prófessor í hagfræði.