Gera má ráð fyrir að þingveturinn hefjist með hvelli enda nóg um að vera í samfélaginu. Verðbólga hefur ekki verið meiri í tvö ár, forsendur kjarasamninga eru brostnar og enn er óvíst hvernig fer með umsókn Íslands að Evrópusambandinu eftir að þjóðin hafnaði aðildarviðræðum.
Við snertum á þessum málum og mörgum öðrum í beinni útsendingu í Pallborðinu á Vísi klukkan 14 í dag.
Þangað mæta Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingar, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingflokksformaður Flokks fólksins, María Rut Kristinsdóttir, varaformaður þingflokks Viðreisnar, Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins og Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknar.