Aron Sigurðarson fór mikinn fyrir KR þegar liðið tók á móti KA í 9. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Meistaravöllum í Vesturbæ í dag.
Leiknum lauk með ótrúlegum sigri KR, 5:3, en Aron skoraði tvívegis í leiknum og kom KR í 4:1 með frábæru marki úr aukaspyrnu af 30 metra færi á 74. mínútu.
Þetta var annar sigur KR-inga í röð en liðið er með 25 stig í öðru sætinu, líkt og Víkingur sem heimsækir Val síðar í kvöld.
KA hefur hins vegar tapað tveimur leikjum í röð eftir þrjá sigra í röð en Akureyringar eru með 10 stig í áttunda sætinu, tveimur stigum frá sæti í efri hlutanum.
Fjörugar lokamínútur
Aron kom KR yfir strax á 5. mínútu, Eiður Gauti Sæbjörnsson tvöfaldaði forystu KR-inga á 17. mínútu og Luke Rae bætti við þriðja marki KR undir lok fyrri hálfleiks og staðan því 3:0 í hálfleik.
Jakob Snær Árnason minnkaði muninn fyrir KA á 63. mínútu áður en Aron bætti við fjórða markinu á 74. mínútu.
Birgir Baldvinsson minnkaði muninn í 4:2 á 82. mínútu og Markús Máni Pétursson minnkaði muninn í eitt mark, 4:3, mínútu síðar.
Galdur Guðmundsson gerði hins vegar út um leikinn með marki í uppbótartíma og þar við sat.