Nýjar upplýsingar sem birtar hafa verið í breskum fjölmiðlum benda til þess að aðeins þremur dögum eftir morðið á hinum 18 ára Henry Nowak, hafi lögreglan í Hampshire reynt að setja fram atburðarás sem gaf í skyn að hann hefði verið árásarmaðurinn í málinu. Þetta kemur fram í umfjöllun GB News um málið.
Samkvæmt umfjöllun Sunday Times átti upphafleg yfirlýsing lögreglunnar að hljóða svo að „tveir menn hefðu orðið fyrir árás af hálfu óþekkts manns“. Á þeim tímapunkti hafði Henry Nowak hins vegar þegar verið stunginn til bana af Vickrum Digwa.
Fjölskyldan mótmælti orðalaginu
Fram kemur að fjölskylda Henry hafi orðið áhyggjufull yfir því að verið væri að skapa ranga mynd af syni þeirra. Lögreglan hafi jafnvel upplýst fjölskylduna um að næsta yfirlýsing myndi áfram gefa til kynna að Henry hefði verið upphafsmaður átakanna.
Eftir mótmæli fjölskyldunnar var orðalaginu breytt. Í endanlegri útgáfu yfirlýsingarinnar var aðeins vísað til átaka milli aðila en ekki gefið til kynna hver hefði hafið þau.
Málið hefur vakið enn meiri athygli í ljósi þess að saksóknarar höfðu þegar á þeim tíma upplýsingar sem bentu til þess að sú atburðarás væri röng.
Gátu stefnt réttarhöldunum í hættu
Sunday Times greinir einnig frá því að Hampshire lögreglan hafi einnig íhugað að gefa út yfirlýsingu um það sem hún taldi vera rangfærslur og misskilning á samfélagsmiðlum á meðan réttarhöld yfir Digwa stóðu enn yfir.
Samkvæmt fréttinni innihélt drög að yfirlýsingunni skýringar á því hvernig dómsmál færu fram, áminningu um að ekki mætti birta efni sem gæti haft áhrif á málsmeðferðina og loforð um að spurningum yrði svarað eftir að réttarhöldum lyki.
Saksóknaraembættið Crown Prosecution Service (CPS) varaði hins vegar lögregluna við og sagði að slík yfirlýsing gæti ógnað meðferð málsins og jafnvel haft áhrif á réttarhöldin.
Talsmaður CPS sagði að embættið hefði lagt áherslu á mikilvægi þess að forðast að fjalla opinberlega um sönnunargögn áður en dómstóll hefði lokið umfjöllun sinni um málið.
Hnífurinn fjarlægður löngu eftir handtöku
Jafnframt hafa komið fram upplýsingar um mistök við handtöku Digwa. Samkvæmt umfjöllun The Sun var hann hvorki handjárnaður við handtöku né var kirpan hnífurinn sem hann bar tekinn af honum strax.
Þegar Digwa kom á lögreglustöðina var hnífurinn enn hangandi um háls hans. Hann var ekki fjarlægður fyrr en við leit, áður en hann var færður í fangaklefa.
Heimildarmaður sagði við blaðið að annað hvort hefðu lögreglumennirnir vitað af hnífnum og leyft honum að halda honum eða ekki tekið eftir honum. Hvort tveggja væri alvarlegt brot á öryggisreglum.
Lögreglan vísar til rangfærslna á netinu
Talskona Hampshire lögreglunnar sagði að mikið magn rangra og villandi upplýsinga hefði verið í dreifingu á netinu eftir að réttarhöldin hófust.
Hún sagði tilgang fyrirhugaðrar yfirlýsingar hafa verið að minna almenning á að málið væri enn til meðferðar fyrir dómstólum og að lög væru skýr um að ekki mætti birta efni sem gæti haft áhrif á niðurstöðu réttarhaldanna.
Að sögn lögreglunnar var ákveðið að birta ekki yfirlýsinguna eftir ráðleggingar frá CPS.
If you think things couldn’t get any worse over the horrific murder of Henry Nowak.
It’s now been revealed that Hampshire police were going to release a statement warning the public not to talk about it online and paint Henry as the aggressor before Digwa’s trial! pic.twitter.com/0MPAspCuo7
— Tommy Robinson 🇬🇧 (@TRobinsonNewEra) June 7, 2026