Fricker fæddist í Dyflinni árið 1945 en hóf leikferil sinn í leikhúsi áður en hún fékk hlutverk í sápuóperunni Coronation Street árið 1977. Seinna fór hún með hlutverk hjúkrunarfræðings að nafni Megan Roach í læknadramaþáttunum Casualty á BBC á árunum 1986 til 2010. Einnig er Fricker þekkt fyrir að leika „heimilislausu dúfnakonuna“ í Central Park-garðinum í Home Alone 2.
Fricker fór með hlutverk móður Daniel Day-Lewis í kvikmyndinni My Left Foot og hlaut Óskarsverðlaun leikkonu í aukahlutverki fyrir leik sinn árið 1989. Hún var fyrst írskra kvenna til þess að hljóta Óskarsverðlaun og hafði betur gegn stjörnum á borð við Juliu Roberts og Anjelicu Huston.