Óskar og Laufey keyptu íbúðina á 92 milljónir í lok árs 2024. Í fasteignaauglýsingu er hún sögð falleg og björt.
Talsverð viðhaldsvinna var unnin utanhúss fyrir tveimur árum og hús og þak málað í framhaldi. Eldhúsið er á palli á efri hæðinni með sýn yfir stofuna, svo sá sem sér um eldamennskuna getur hæglega rætt við þá sem sitja niðri.
Húsið var byggt 1988 og er hannað af Úti og inni ehf. Stutt er í skóla, leikskóla, matvöruverslanir og kaffihús. Þá er Vesturbæjarlaugin í næsta nágrenni og stutt í íþróttasvæði KR en Óskar er einmitt þjálfari karlaliðs KR í knattspyrnu.