Rætt var við Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, oddvita Vinstrisins, í hádegisfréttum Bylgjunnar.
Einstakt kalt hafsvæði suður af Íslandi virðist tengjast veikari hringrás í hafinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem vísindamenn á Íslandi tóku þátt í.
Sérfræðingur í netöryggi segir Háskóla Íslands ekki hólpinn þrátt fyrir að búið sé að endurheimta aðgang að námsumsjónarvef eftir netárás á dögunum. Þá sé tímaspursmál hvenær kennitölur verða nýttar í stórri árás.
Karlmaðurinn sem var fluttur til Noregs með brunasár í kjölfar lögregluaðgerða í Reykjanesbæ er enn í lífshættu og á gjörgæslu. Mál mannsins er til rannsóknar hjá embætti héraðssaksóknara.
Fjórum mönnum, sem sátu höfðu fastir í helli í Laos í tíu daga, var í gær bjargað. Talið er að tveir séu enn fastir í hellinum.
Listahátíð í Reykjavík verður sett klukkan tvö í dag en hátíðin stendur yfir til 14. júní. Alls eru viðburðir hátíðarinnar um sextíu talsins og flytjendur um þrettán hundruð en Björk Guðmundsdóttir er meðal listamanna sem koma fram á hátíðinni.
Á mánudag fagnar Ísafjarðarbær þrjátíu ára afmæli. 1. júní 1996 sameinuðust sex sveitarfélög, Þingeyrarhreppur, Mýrahreppur, Mosvallahreppur, Flateyrarhrepur, Suðureyrarhreppur og Ísafjarðarkaupstaður, undir heiti nýs sveitarfélags Ísafjarðarbæjar.