Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur boðað neyðarfund á morgun um aukinn hernaðarþunga Ísraela í Líbanon. Ísraelsher hefur ruðst enn lengra inn í Líbanon sunnanvert og tók í dag yfir sögufrægan kastala. Benjamín Netanyahu forsætisráðherra Ísraels sagði í yfirlýsingu í dag að aðgerðin markaði breytta stefnu og nýtt stig hernaðar Ísraela í Líbanon.
Beaufort-kastalinn í sunnanverðu Líbanon var reistur fyrir um 900 árum. Ísraelar hafa áður tekið hann yfir, í fyrra stríði milli ríkjanna fyrir rúmlega fjórum áratugum.
Benjamín Netanyaju forsætisráðherra Ísraels sagði í yfirlýsingu í dag að aðgerðin markaði breytta stefnu og nýtt stig hernaðar Ísraela í Líbanon. Ísraelsk stjórnvöld hafa sakað Hezbollah-samtökin í Líbanon um að brjóta skilmála vopnahlés sem Ísraelar og Líbanir sömdu um.
Líbönsk stjórnvöld og líbanski herinn eru ekki þátttakendur í stríði Ísraela og Hezbollah þó að barist sé við og innan landamæra Líbanon. Yfirvöld þar segja að 3.300 liggi í valnum síðan Ísraelar hrintu af stað loftárásum og landhernaði gegn Líbanon í byrjun apríl.
Funda um framhald vopnahlés
Vopnahléið tók gildi í apríl og hefur verið framlengt í tvígang. Viðræður um framhaldið eru fyrirhugaðar í Bandaríkjunum í vikunni.
Nawaf Salam, forsætisráðherra Líbanons, sakaði Ísraela um brot gegn alþjóðalögum og frönsk stjórnvöld óskuðu eftir neyðarfundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Jean Noel Barrot, utanríkisráðherra Frakka, sagði ekkert réttlæta áframhald hernaðar Ísraela í Líbanon og sókn þeirra svo langt inn fyrir landamærin. Ísraelar væru að gera mikil mistök.