Innflutningur á ódýrum vinnuvélum sem standast ekki kröfur Vinnueftirlitsins má aldrei vera á kostnað öryggis, segir atvinnuvegaráðherra. Vinnueftirlitið sé að sinna hlutverki sínu þegar það bannar innflutning á slíkum vélum.
Vinnueftirlitið sinnir hlutverki sínu
Vinnueftirlitið hefur upp á síðkastið stöðvað innflutning á vinnuvélum og tækjum frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins því þau hafa ekki staðist öryggiskröfur.
Kaupendur hafa því margir setið eftir með sárt ennið og ein kæra hefur þegar borist félags- og húsnæðismálaráðuneyti vegna ákvarðana Vinnueftirlitsins. Hópur manna segist hafa orðið fyrir fjárhagstjóni vegna afskiptanna.
„Ég sé ekki betur en að þarna sé bara Vinnueftirlitið að sinna sínu hlutverki, það er að segja að tryggja að vinnuvélar sem fluttar eru til landsins til notkunar uppfylli samevrópskar kröfur um gæði og öryggi, þetta er gríðarlega mikilvægt mál, þetta eru stór og þung tæki og þau þurfa auðvitað að vera örugg,“ sagði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.
Afar fá mál í stóru myndinni
Fram kom í máli forstjóra Vinnueftirlitsins í síðustu viku að frá nóvember hafi 350 mál komið upp þar sem óskað var eftir frekari gögnum, af þeim voru 40 skoðuð nánar og 17 þeirra voru bönnuð í markaðssetningu.
Atvinnuvegaráðherra segir að þessar tölur sýna það og sanna að innflutningurinn sé alla jafna í lagi. Vinnueftirlitið sinni hlutverki sínu til að tryggja öryggi notenda þessara tækja.
Aldrei á kostnað öryggis
Þessi sautján mál tengdust innflutningi á fjölda vinnuvéla sem flestar voru keyptar á sölutorginu Ali express. Hérlendis getur tveggja tonna CE-merkt beltagrafa kostað allt frá tæpum fimm milljónum með virðisaukaskatti en á Ali express má sjá vinnuvélar og landbúnaðartæki auglýst á broti af því verði. Flestir kaupi þó vélarnar í góðri trú.
„Ég skil og veit auðvitað að fyrirtæki leita allra leiða til að hagræða í rekstri og kaupa inn ódýrt en það má auðvitað aldrei vera á kostnað öryggis það liggur bara fyrir og Evrópusambandið er nú kannski síðasta brjóstvörn sem stendur uppi til að gæta þessa öryggis neytenda en í þessu tilviki stjórnenda líka, við höfum þessar samevrópsku öryggiskröfur, það þarf einfaldlega að uppfylla þær, það er hlutverk vinnueftirlitsins að svo sé og síðan þarf málið bara að fara sinn gang,“ sagði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.