Forstjóri smásölufyrirtækisins Dranga segir að ekki til standi að opna aftur verslun á Bolungarvík á Vestfjörðum eftir að Kjörbúðinni þar var lokað nú í maí. Þetta segir forstjórinn, Auður Daníelsdóttir, þegar hún er spurð út í kaup Dranga á 25 fasteignum af dótturfélagi Kaupfélags Suðurnesja. Verslunarhúsnæðið í Bolungarvík var ein af þessum fasteignum. „Við vorum að kaupa þessar 25 fasteignir. Þetta er verslunarhúsnæði um allt land. Það er stefnan hjá okkur að halda áfram með verslun í flestum þessum fasteignum. Þetta eru góðar staðsetningar á þessum fasteignum og það krefst þess að fara í ákveðnar endurbætur þannig við töldum það vera best að eignast þessar fasteignir þannig að við getum gert við þær sjálf,“ segir Auður í samtali við fréttastofu.
Kaupfélagið á Suðurnesjum sem selur þessar fasteignir til Dranga er næst stærsti hluthafi Dranga á eftir fjárfestingarfélaginu SKEL . Meirihlutaeigandi í SKEL er félagið Strengur sem er að stóru leyti í eigu félaga Jóns Ásgeirs Jóhannessonar fjárfestis. Kaupfélagið eignaðist þennan hlut í Dröngum þegar félagið seldi hluti sína í Samkaupum og fleiri verslununum í fyrra. Lífeyrissjóðir eru svo næstir í röðinni á hluthafalista Dranga.
Fréttin um lokun Kjörbúðarinnar á Bolungarvík vakti nokkra athygli í byrjun mánaðarins eftir að sagt frá málinu í Bæjarins besta á Ísafirði.
Fjallað er um fasteignaviðskipti Dranga og Kaupfélagsins á Suðurnesjum og vöxt Dranga á smásölumarkaði á Íslandi í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Drangar reka í dagverslanir eins og Nettó, Prís, Krambúðina, bensínstöðvar Orkunnar, bílaþvottastöðina Löður og fleiri smásölufyrirtæki. Þáttinn má hlusta á hér:
Verður Prís á Ísafirði eða á Fiskislóð?
Auður Daníelsdóttir segir aðspurð um það hvort Drangar ætli sér að opna Prís-verslun á Ísafirði eða halda áfram með Nettóverslunina þar að Nettóverslunin verði áfram á Ísafirði. Í umfjölluninni um lokun Kjörbúðarinnar í Bolungarvík kom fram að starfsfólki þar hefði verið boðið starf í Nettó á Ísafirði.
Í opinberri umræðu hefur komið fram að Drangar ætli sér að opna aðra Prís-verslun á höfuðborgarsvæðinu á næstunni. Auður segir að þetta verði gert nú í sumar eða haust.
Auður er meðal annars spurð að því hvort Drangar ætli sér að opna Prísverslun á Fiskislóð á Grandanum í Reykjavík. „Það er mikið spurt um þetta en við erum ekki að reikna með því nei. Það liggur fyrir að við ætlum að gera góðar breytingar á þeirri Nettóverslun sem þar,“ segir Auður.