Orrustuþota hrapaði skammt frá Moskvu

Frá vettvangiVarnarmálaráðuneyti Rússlands hefur ekki tjáð sig um slysið
Rússnesk Su-57 orrustuþota hrapaði nærri borginni Zvenigorod í Moskvu-héraði, að því er Telegram-fréttamiðillinn Ostorozhno Novosti greinir frá. Sömu upplýsingar hafa einnig birst á Telegram-rásunum 112 og Mash, sem hafa tengsl við rússnesk öryggisyfirvöld.
Samkvæmt frásögnum vitna hrapaði þotan niður á svæði milli Shikhovo-hverfis í Zvenigorod og þorpsins Lutsino.
Bráðabirgðaupplýsingar benda til þess að flugmennirnir hafi náð að skjóta sér út úr vélinni áður en hún hrapaði.
Rússneska varnarmálaráðuneytið hefur enn ekki tjáð sig um slysið.