Orðið á götunni er að hveitibrauðsdagar nýs meirihluta og nýs borgarstjóra séu að baki. Skiptar skoðanir eru á því hvernig fyrstu skrefin hafi tekist og þyki framganga borgarstjórans einkennast af ákveðnum hroka, auk þess sem óþarfa harka sé sýnd í samskiptum við starfsfólk borgarinnar og stofnana hennar.Orðið á götunni er að það hafi farið illa í fjölda fólks, ekki bara þá sem urðu fyrir þeim niðurskurði, þegar ræstingafólki á leikskólum var sagt upp og verkefnum þeirra útvistað til einkafyrirtækja.
Orðið á götunni: Borgarstjóri þarf að gæta sín