Terra hefur opnað nýja móttökustöð fyrir fyrirtæki að Berghellu 1 í Hafnarfirði. Þangað geta fyrirtæki nú komið með úrgang sinn til förgunar á einfaldan, hagkvæman og þægilegan hátt að sögn Gísla Þórs Arnarsonar, framkvæmdarstjóra þjónustu hjá Terra.„Fyrirtæki keyra einfaldlega inn á vigt við komu og aftur við brottför og greiða samkvæmt kílóum sem skilað er inn, en ekki rúmmáli. Þjónustan er opin bæði fyrirtækjum í reikningsviðskiptum við Terra og þeim sem vilja greiða á staðnum,“ segir Gísli Þór.
Opna nýja móttökustöð fyrir fyrirtæki