Ómenning að líta á kynferðisbrot sem „fórnarkostnað við skemmtun“
Drífa Snædal talskona Stígamóta segir orðræðu um kynferðisbrot á útihátíðum „einkennismerki þess að ofbeldi er látið viðgangast í samfélaginu“. Um helgina voru fjögur kynferðisbrot á útihátíðum tilkynnt til lögreglu en hátíðarhaldarar og lögregla tala um að hátíðarhöld hafi almennt gengið vel.
„Þetta er einkennismerki þess að ofbeldi er látið viðgangast í samfélaginu,“ segir Drífa Snædal talskona Stígamóta um orðræðu sem viðgengst varðandi kynferðisbrot á útihátíðum.
Um helgina fóru bæði Landsmót hestamanna og Kótelettan fram en lögreglan á Norðurlandi og lögreglan á Suðurlandi rannsaka báðar kynferðisbrot eftir hátíðarhöldin, eitt brot á landsmótinu og þrjú á Kótelettunni. Í báðum tilfellum hafa hátíðarhaldarar og lögregla sagt hátíðirnar almennt hafa farið vel fram. Drífa segir þetta hluta af „ómenningu þar sem fólk telur það vera einhvers konar fórnarkostnað við skemmtun að það sé ofbeldi samfylgjandi“.
„Þrátt fyrir“ og „að öðru leyti“ gekk vel
Fréttir helgarinnar voru svohljóðandi: „Tilkynnt var um eina líkamsárás og eitt kynferðisbrot á Landsmóti hestamanna á Hólum í Hjaltadal í …