Ómál­efna­legir dónar fara í skammar­krókinn - Vísir

Ómál­efna­legir dónar fara í skammar­krókinn - Vísir

Ómál­efna­legir dónar fara í skammar­krókinn - Vísir

„Já, við Gunnlaugur Jónsson og Andri Valur Guðjohnsen erum að setja í loftið nýja virkni á Speakness,“ segir Ingvar Örn Ingvarsson framkvæmdastjóri Veriate og einn eigenda ráðgjafafyrirtækisins Instrument, Cohn & Wolfe á Íslandi. Um er að ræða íslenskan hugbúnað sem þróaður er sérstaklega til að stuðla að betri fjölmiðlun og athugasemdum þar við; nýtt og bætt athugasemdakerfi.

„Þetta er alþjóðleg vara og við gætum þurft að lókalísera Speakness eitthvað.“

Sjálft lýðræðið er undir

Þeir þremenningar hófu þessa vegferð fyrir átta árum en allir eru þeir áhugamenn um fjölmiðla. Þeir stofnuðu fyrirtæki fyrir fimm árum og svo fengu þeir fjármagn til að hrinda þessu úr vör fyrir tveimur árum.

Hópurinn sem stendur að Speakness: Hilmar Hilmarsson, Ingvar Örn Ingvarsson, Hildur Fjóla Svansdóttir, Gabríela Jóna Ólafsdóttir, Gunnlaugur Jónsson og Andri Valur Guðjohnsen.aðsend

„Nú erum við loks tilbúnir með þetta. Upprunalega hugmyndin var athugasemdakerfi og skorkerfi fyrir fjölmiðla og þá umfjöllun við fréttir. Við mátum það sem svo að vandamálið væri það að fólk væri ekki nógu háttvíst á samfélagsmiðlum og í athugasemdakerfum. Kosningin, sem er í þremur liðum við athugasemdir, er hvort hún sé háttvís, gagnleg og hvort menn séu henni sammála.“

Ingvar Örn segir að fyrir liggi mikil hnignun á fjölmiðlum, miðlarnir hafi tvístrast, fjölmargir smáir miðlar séu til staðar sem erfitt er að skilgreina og gervigreindin hafi hraðað þessari uggvænlegu þróun.

Fjölmiðlalæsi verulega ábótavant

„Fólk er að leita eftir trausti. Það vill geta sýnt traustið með því að kjósa um fréttir, hvort sem þær eru að þess mati góð fréttamennska eða slæm.“

En nú er fjölmiðlalæsi ekki upp á marga fiska; fólk virðist ekkert endilega vita hvað er góð blaðamennska og hvað slæm?

„Klárlega. Þetta er vandamál og eitt af því sem við höfum verið að tala um. En fólk getur verið sammála um að eitthvað sé ekki góð blaðamennska, eins og til dæmis „click bait“…“

... sko, fólk virðist almennt ekki vita hvað „click-bait“ er. Það virðist telja margar góðar fyrirsagnir „click-bait“ þótt þær þjóni nákvæmlega „lögboðnu“ hlutverki sínu sem er að gefa til kynna um hvað fréttin er. Click-bait er að draga fólk til lesturs á fölskum forsendum?

„Já, það er svo annað mál. En fólk getur öðlast skilning á því meðal annars þegar það sér kosningu við fréttir.“

Stuðmenn gjaldþrota

Ingvar segir að almennt séu þeir að veðja á að þeir sem eru virkastir og hafa mestan áhuga á fréttum séu líklegri til að kjósa en aðrir. 

„Þú getur sem sagt sett athugasemd við frétt og fengið kosningu á þá athugasemd. Aðalatriðið er að greina frá því hvort þér finnist fréttamennska góð eða slæm. Hvað vill fólk ekki sjá? Og blaðamaðurinn geti þá að teknu tilliti til þess vandað sig betur, til að mynda í fyrirsögnum.“

En fyrirsagnir eru ekki hluti fréttar, þær eru liður í framsetningu þeirra?

„Já, eða fréttamennskunni í heild sinni. Það hlýtur alltaf að vera huglægt mat. Það verður einhvern veginn að kenna fólki sem gerist með umræðu um fréttamennsku og það lærist yfir tímann. Lesandi hefur þessa skoðun á fréttinni hvort sem okkur líkar betur eða verr. Með þessu móti færðu mun milli blaðamanna á miðlum, þú færð kosningu milli eðlis frétta, mun milli miðla og lesenda líka.“

Hér má sjá dæmi um það hvernig þetta lítur út á speakness.com: þetta eru til að mynda umtalaðar fréttir sem menn vilja skiptast á skoðunum um.

Ingvar Örn nefnir dæmi um frétt: Stuðmenn gjaldþrota. „Þetta var rafverktakafyrirtæki á Suðurnesjum sem var gjaldþrota. Ekki hljómsveitin. Blaðamaður vissi alveg hvað hann var að gera. Þarna er verið að spila með fólk sem getur verið í lagi en aðhaldið verður að vera til staðar. Við erum ekki að reyna að spilla fyrir „taboid-miðlum“, fréttamennskan getur verið hvernig sem er en ég veit að flestir gefa gott skor fyrir góð vinnubrögð og Speakness ætti að auðvelda lesendum að greina þar á milli.“

Að skoðanamyndandi fólk verði umræðustjórar

Af sama tagi var fyrirsögn sem sagði Bill Gates látinn en þar var verið að tala um bakvörð í Middlesborough en ekki Microsoft-manninn. Fleiri dæmi má nefna til sögunnar þar sem fyrirsagnir ramba á barmi þess að mega heita gamansamar og vera hreinn og klár smelludólgaháttur.

En Speakness er sem sagt komið í gagnið?

„Já, við höfum kynnt þetta fyrir öllum fjölmiðlum á Íslandi, látið þá vita af okkur en við erum ekki byrjaðir í neinni markaðssetningu. Uppfærsla var í síðustu og þessari viku og sá hluti gengur út á það að það er hægt að stofna til umræðu, ekkert ólíkt því sem gert er á samfélagsmiðli, fyrir þá sem ekki eru búnir að taka upp kerfið,“ segir Ingvar Örn.

Ingvar Örn segir athugasemdakerfið sérstaklega hugsað til að styrkja fjölmiðla og blaðamennsku. aðsend

Hægt er að stofna til umræðu við hvaða frétt sem er í raun og fer hún þá inn á sérstakt vefsvæði, Speakness.com, svona svipað og er á samfélagsmiðlum. Ingvar Örn útskýrir að þeir hafi talið nauðsyn á að koma þessu í gagnið vegna ESB-umræðunnar; að þeir sem hafi áhuga á geti nú tjáð sig í öruggara umhverfi. Þeir eru nú að mynda þröngan hóp sem þeir treysta til að vera sérstakir umræðustjórar og þeir geti stofnað til umræðunnar.

„Við erum að bjóða skoðanamyndandi fólki úr öllum áttum að gerast umræðustjórar og þeir sem eru sérlega áhugasamir geta sett sig í samband við okkur.“

Ekki enn búið að binda þetta við sérstaka miðla

Þeir hjá Veriate hafa verið með prufuútgáfu á Nútímanum og einhvern tíma var fyrsta útgáfa við fréttir Mbl.

„Þegar við vorum með Beta-útgáfu. En fólk er sem sagt með alla sína kommentasögu og getur þá til að mynda skoðað afstöðu sína til frétta og málefna, hvort hún hafi breyst yfir árin.“

Umræðuglaðir en ábyrgir einstaklingar verða fengnir til að gerast sérstakir umræðustjórar.

Ingvar Örn segir talsverðan gagnakostnað vera þessu samfara og sem stendur ægi öllu saman inni á Speakness.com; íþróttafréttir, Eyjafréttir, Kaffið, Bæjarins besta, Viðskiptablaðið og Vísir…

„Við erum ekki byrjaðir á að sækjast eftir því að binda þetta við nýja miðla enn sem komið er en við viljum til að mynda tengja þetta kerfi við héraðsmiðla og sérmiðla þar sem fólk vill taka umræðu. Eins og áður sagði ber fólk sem hefur umræðu ábyrgð á henni. Sá sem hefur umræðuna þarf að vera auðkenndur með rafrænum skilríkjum svo fólk viti hver hann er.“

Rónarnir sem komi óorði á brennivínið

Í dag deila miðlar efni sínu á Facebook og þar fer umræðan þá fram.

„Við viljum snúa þessu við. Fjölmiðlarnir fá alltaf smellinn eða lesturinn. Við erum að reyna að ýta lestri aftur til fjölmiðlanna og frá samfélagsmiðlum. Að umræðan fari fram við þær fréttir sem skrifaðar eru. Þetta er fyrsta skrefið, jafnvel þó að fjölmiðlarnir séu ekki komnir með kerfið. Með því að taka upp kerfið færist umræðan við tilteknar fréttir alfarið inn á miðlana.“

Hér getur að líta tímalínu af fréttum sem koma frá flestum fjölmiðlum landsins jafn óðum. Hægt er að sía eftir flokkum eða fjölmiðlum.

Ingvar Örn er ekki í vafa um gagnið sem af þessu getur hlotist fyrir fjölmiðlaumræðuna í heild sinni og umræðu um hin ýmsu mál sem fólk lætur sig varða; hestamennsku eða ESB. Og lesendur geta elt sín áhugasvið.

„Heilbrigðismál eða nefndu það, Ísrael/Gaza... og blaðamenn geta tekið hluta umræðunnar til sín. Upplýstar og háttvísar athugasemdir geta veitt fjölmiðlafólkinu einhverjar upplýsingar, sérstaklega ef þar tala þeir sem vita eitthvað um málin.“

Sá sem þetta skrifar hefur ætíð verið jákvæður gagnvart athugasemdakerfum og hann hefur vonast til þess að samfélagið vaxi upp í það að geta notað athugasemdakerfi sæmilega skammlaust en sú hefur ekki orðið raunin, þvert á móti og líkt og með brennivínið þá koma rónarnir óorði á áfengið. Fylleríið á athugasemdakerfunum hefur bara aukist og Vísir hefur til að mynda þurft að leggja sitt athugasemdakerfi frá Facebook niður.

„Já, þetta er vítahringur,“ segir Ingvar Örn og nefnir til sögunnar rannsóknir sem fram hafa farið á nethegðun.

Þeir yfirlýsingaglöðustu taka súrefnið frá málefnalegri umræðu

„Þeir háværustu vekja mesta athygli. Þeir sem eru yfirlýsingaglaðastir eiga einhvern veginn sviðið og þannig er hvatinn til að gíra sig upp sterkur. Við viljum taka þann hvata í burtu. 

Þó dæmið um rónann sem kemur óorði á brennivínið segir Ingvar reyndar að þeir rónar sem hann hafi kynnst séu besta fólk, það séu yfirleitt aðrir sem koma óorði á áfengið. En það er önnur saga.

Það gerist þannig að ef menn eru ómálefnalegir er hægt að kjósa þig niður og svo ferðu í skammarkrókinn. Lesendur eru miklu, miklu stærri hópur en freki kallinn sem öskrar sig hásan. Þetta er tæki til að snúa niður rónann sem kemur óorði á áfengið.“

Ingvar Örn segist reyndar hafa búið í miðborginni og það séu yfirleitt einhverjir aðrir sem komi óorði á áfengið en rónarnir sem oftar en ekki eru bestu skinn. En það er önnur saga. Hann segir að Speakness styrki fjölmiðlana óbeint sem fái meiri lestur ef fólk leggi orð í belg. Fjölmiðlar nærist á gagnrýni; aðhaldi og gagnvirkni – samtali. En hversu margir eru notendur Speakness? Ingvar segist ekki vera með töluna á hraðbergi á þessu stigi.

Hér má sjá enn eitt dæmi um hvernig þetta virkar. Þú getur til að mynda skrifað inn hvaða fréttir þú hefur áhuga á að sjá og ratsjáin safnar þeim fréttum jafn óðum fyrir þig í sér flokk fyrir þig til að skoða.

„Ég held að þetta hafi farið hæst í tæplega 12 þúsund sem var þegar kerfið var í tengslum við Morgunblaðsprufuna. Við höfum ekkert verið að ýta þeim út, en við fáum einhverjar raunhæfar tölur um þetta bráðlega. Ætli þetta séu ekki tíu þúsund notendur en svo eru kannski bara tíu prósent þeirra virkir. Þetta er eins og almennt gerist á samfélagsmiðlum.“

Ingvar Örn er sannfærður um að með virku samtali notenda og þeirra sem skrifa fréttirnar batni þær til mikilla muna. Almenningur hefur, með áhuga sínum, talsvert meiri áhrif á hvað birtist á fréttamiðlum og trúverðugleiki er líklega dýrmætasta eign hvers fjölmiðils.

#dónar #fara #skammarkrókinn #vísir #ómálefnalegir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262910489d/omalefnalegir-donar-fara-i-skammarkrokinn

📰 Aðrar fréttir

Þung­málmar í drykkjar­vatni á Sval­barða vegna þiðnunar - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 0
Þung­málmar í drykkjar­vatni á Sval­barða vegna þiðnunar - Vísir
Fyrst var íbúum í Longyearbyen á Svalbarða ráðið frá því að drekka vatn úr krana í september í fyrra þegar styrkur mangans í því mældist tuttugu og fi...
Ný könnun um framtíð Christu Pike – Önnur aftaka eða mildun í lífstíðardóm?
📅 20.10.2026 👁️ 0
Ný könnun um framtíð Christu Pike – Önnur aftaka eða mildun í lífstíðardóm?
Bandaríkjamenn eru klofnir í afstöðu sinni til þess hver framtíð hins dauðadæmda morðingja Christu Pike eigi að vera. Þetta kemur fram í nýrri könnun....
Áhrifamikil orð Jóhannesar á sérstökum degi: „Því á morgun getur það verið of seint“
📅 20.10.2026 👁️ 0
Áhrifamikil orð Jóhannesar á sérstökum degi: „Því á morgun getur það verið of seint“
„Í dag er ég nákvæmlega jafngamall og pabbi var þegar hann lést þann 10. febrúar 1983. Hann lifði í 19.983 daga - jafnmarga daga og ég hef lifað.“Svon...
„Ef ég hefði fundið til vanhæfis hefði ég alltaf vakið athygli á því“
📅 20.10.2026 👁️ 0
„Ef ég hefði fundið til vanhæfis hefði ég alltaf vakið athygli á því“
Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar á Laugum var afturkallað eftir kæru fimm íbúa. Fyrirtækið bíður úrskurðar um bráðabirgðaleyfi.Samherji er stærs...
Bólginn á höndunum skríðandi til Bessa­staða - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 0
Bólginn á höndunum skríðandi til Bessa­staða - Vísir
„Ég er að skríða frá Njarðvík til Bessastaða með umslag til Höllu,“ segir Axel Máni í samtali við Vísi en tekur fram að hann vilji ekki gefa upp innih...
Árásir landtökufólks á ólífubændur aukast
📅 20.10.2026 👁️ 0
Árásir landtökufólks á ólífubændur aukast
Ísraelska lögreglan hefur handtekið tíu sem eru grunaðir um árásir á diplómata og bandaríska fjölmiðlakonu. Árásir landtökufólks á ólífubændur eru þeg...
Seltjarnarnesbær verður að hagræða
📅 20.10.2026 👁️ 0
Seltjarnarnesbær verður að hagræða
Mörg sveitarfélög standa frammi fyrir erfiðari rekstri en áður. Við blasir að þau verða að fara í hagræðingaraðgerðir. Fámennasta og minnsta sveitarfé...
Meintir njósnarar hand­teknir í Dan­mörku - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 0
Meintir njósnarar hand­teknir í Dan­mörku - Vísir
Saksóknarayfirvöld í Danmörku hafa gefið út að mennirnir tveir hafi í gær tekið myndir af höfuðstöðvum varnarmálafyrirtækisins MyDefence á Norður-Jótl...
Liggur yfir umsögnum um umdeildan náttúrupassa
📅 20.10.2026 👁️ 0
Liggur yfir umsögnum um umdeildan náttúrupassa
Frumvarp um náttúru- og innviðagjald verður lagt fram á Alþingi á næstu vikum. Áformin sættu töluverðri gagnrýni í samráðsferli og ráðherra skoðar hvo...
Hiti undir frostmarki og hálka á vegum
📅 20.10.2026 👁️ 0
Hiti undir frostmarki og hálka á vegum
Hiti er undir frostmarki á fjallvegum á Norðurlandi og á Vestfjörðum. Þar af leiðandi er hálka og krapi á nokkrum vegum og ökumenn verða að hafa varan...
Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 2
Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt - Vísir
Nína flutti út til Parísar í skiptinám í lok sumars og nýtur lífsins úti í botn þrátt fyrir ýmsar áskoranir. Blaðamaður ræddi við hana um lífið í þess...
Óhugnan­lega mikið að leysa vanda­málin með töflum - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 2
Óhugnan­lega mikið að leysa vanda­málin með töflum - Vísir
Þótt dregið hafi úr notkun hefðbundinna svefnlyfja á borð við stilnoct og imovane á síðustu árum eru vísbendingar um að hluti lyfjanotkunar vegna svef...
Óhugnan­lega margir að leysa vanda­málin með töflum - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 0
Óhugnan­lega margir að leysa vanda­málin með töflum - Vísir
Þótt dregið hafi úr notkun hefðbundinna svefnlyfja á borð við stilnoct og imovane á síðustu árum eru vísbendingar um að hluti lyfjanotkunar vegna svef...
Ole Anton Bieltvedt: Semjum meðan við getum enn gert góðan samning
📅 20.10.2026 👁️ 2
Ole Anton Bieltvedt: Semjum meðan við getum enn gert góðan samning
„Hver við erum og hver viljum við vera, eða verða, er spurningin. Við erum evrópsk. Ísland er hluti af Evrópu. Ekki bara landfræðilega, heldur líka ma...
Friðrik biður fólk að víkja sér ekki undan látna barninu: „Svei þeim“
📅 20.10.2026 👁️ 2
Friðrik biður fólk að víkja sér ekki undan látna barninu: „Svei þeim“
Að minnsta kosti fimmtán særðust og fimm létust þegar rússneskur dróni hæfði almenningsgarð fyrir utan kaffihús í Kharkiv í Úkraínu, meðal þeirra sem ...
Umboðsmaður Fontaines D.C. lést af völdum sjálfsvígs
📅 20.10.2026 👁️ 2
Umboðsmaður Fontaines D.C. lést af völdum sjálfsvígs
Trevor Dietz, sem liðsmenn írsku hljómsveitarinnar Fontaines D.C. kölluðu sjötta meðlim hennar, var 47 ára þegar hann lést í júní. Rannsókn á andláti ...
Zelensky says US intelligence sharing 'works now' after talks with Trump envoy in Oslo
📅 20.10.2026 👁️ 2
Zelensky says US intelligence sharing 'works now' after talks with Trump envoy in Oslo
Ukraine had accused the US of withholding key intelligence - a claim rejected as "scandalous" by Washington.
Er barnsfaðir Bonnie Blue loksins fundinn? – Fékk símtal frá blaðamanni um miðja nótt
📅 20.10.2026 👁️ 2
Er barnsfaðir Bonnie Blue loksins fundinn? – Fékk símtal frá blaðamanni um miðja nótt
Tommy Lee, klámmyndaleikari og fyrrverandi hnefaleikamaður, hefur verið orðaður við að vera barnsfaðir hinnar umdeildu klámstjörnu Bonnie Blue. Tommy ...
Utanríkisráðuneytið hvetur ferðalanga til að kynna sér aðstæður í Evrópu
📅 20.10.2026 👁️ 2
Utanríkisráðuneytið hvetur ferðalanga til að kynna sér aðstæður í Evrópu
Utanríkisráðuneytið hvetur ferðalanga til að kynna sér aðstæður í Evrópu í ljósi mótmæla og óeirða sem ríkt hafa víðs vegar um álfuna síðustu daga. Fó...
Schools should recognise antisemitism as distinct form of harm, review says
📅 20.10.2026 👁️ 2
Schools should recognise antisemitism as distinct form of harm, review says
The government is expected to accept all 27 recommendations made in the review by ex-Ofsted boss, Sir David Bell.
Atvinnuleysi meðal tölvunarfræðinga aukist um 70% á tveimur árum
📅 20.10.2026 👁️ 2
Atvinnuleysi meðal tölvunarfræðinga aukist um 70% á tveimur árum
Atvinnuleysi meðal þeirra sem lokið hafa prófi í tölvunarfræði eða skyldum greinum hefur aukist um 70% á tveimur árum.Tilkynnt var um tvær hópuppsagni...
Óttast að búið sé að normalísera ofbeldi í kynlífi með dómi Landsréttar
📅 20.10.2026 👁️ 2
Óttast að búið sé að normalísera ofbeldi í kynlífi með dómi Landsréttar
Þúsundir vilja óháða úttekt á meðferð dómstóla á kynferðis- og kynbundnum ofbeldismálum eftir að Landsréttur sýknaði mann á fertugsaldri af nauðgun.Fó...
Harmageddon | Ofbeldi og eyðilegging
📅 20.10.2026 👁️ 2
Harmageddon | Ofbeldi og eyðilegging
HarmageddonÓeirðirnar í Frakklandi ættu að vera víti til varnaðar. Óvarleg fjölmenningar- og innflytjendastefna getur reynst vestrænum samfélögum stór...
Heimsókn Rubio kostaði lögreglu 25 milljónir
📅 20.10.2026 👁️ 2
Heimsókn Rubio kostaði lögreglu 25 milljónir
Kostnaður sem féll til hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna heimsóknar Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Íslands fyrr í mánuðinu...
„Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 2
„Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ - Vísir
Þetta kom fram í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Þar var rætt við Elliða í tilefni af Facebook færslu hans sem vakið hefur mikla athygli þar sem hann ...
Stefna á að leita að líki Lúðvíks í nóvember
📅 20.10.2026 👁️ 2
Stefna á að leita að líki Lúðvíks í nóvember
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að senda sigmenn í leit að lík Lúðvíks Péturssonar sem féll í sprungu í Grindavík fyrir rúmum t...
Leikarinn um það sem fór úrskeiðis í sambandinu
📅 20.10.2026 👁️ 3
Leikarinn um það sem fór úrskeiðis í sambandinu
Leikarinn Jason Sudeikis opnar sig um það sem fór úrskeiðis í sambandi hans og leikkonunnar og leikstjórans Oliviu Wilde.Leikarinn tjáir sig venjulega...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Hvað ef kosningarnar fara fram, en lýðræðið tapar?
📅 20.10.2026 👁️ 3
Sigvaldi Einarsson skrifar: Hvað ef kosningarnar fara fram, en lýðræðið tapar?
Bandaríkin ganga til þingkosninga 3. nóvember. Stærsta spurningin er ekki aðeins hver vinnur, heldur hvort sigurvegarinn fái að beita því valdi sem kj...
Katrín Oddsdóttir: Þetta hljómar eins og spilling og þetta labbar eins og spilling og þetta kvakar eins og spilling – er samt bara einhvers konar íslensk forheimskun
📅 20.10.2026 👁️ 3
Katrín Oddsdóttir: Þetta hljómar eins og spilling og þetta labbar eins og spilling og þetta kvakar eins og spilling – er samt bara einhvers konar íslensk forheimskun
Þegar lögin um að umsóknir um sjókvíaeldi við Ísland yrðu að fara í gegnum útboðsferli, en ekki bara úthlutað á færibandi eins og áður, tóku gildi var...
Misstu dótturina tíu daga gamla – „Vissum ekki að frunsa gæti drepið barn“
📅 20.10.2026 👁️ 3
Misstu dótturina tíu daga gamla – „Vissum ekki að frunsa gæti drepið barn“
Ungt par í Bretlandi missti dóttur sína aðeins tíu daga gamla úr HSV vírusnum, sem veldur frunsu. Móðirin segist berjast við sektarkennd þar sem líkle...
Zelensky vill funda með Trump og Pútín
📅 20.10.2026 👁️ 2
Zelensky vill funda með Trump og Pútín
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segist reiðubúinn að setjast til viðræðna með forsetum Bandaríkjanna og Rússlands um stríðið í Úkraínu.Þetta sagði h...
„Ég get ekki séð að hagsmunum borgaranna sé einhvern veginn betur borgið eftir að fulltrúum fjölgaði“
📅 20.10.2026 👁️ 2
„Ég get ekki séð að hagsmunum borgaranna sé einhvern veginn betur borgið eftir að fulltrúum fjölgaði“
Borgarstjóri segist ekki geta séð að hagsmunum borgarbúa sé betur borgið eftir fjölgun borgarfulltrúa. Hægt sé að skoða hvort einhver hluti borgarfull...
Hvar er karlmannadagurinn? Hver borgar brúsann – og hvað gerðist ef íslenskir karlmenn tækju sér frí í einn dag?
📅 20.10.2026 👁️ 2
Hvar er karlmannadagurinn? Hver borgar brúsann – og hvað gerðist ef íslenskir karlmenn tækju sér frí í einn dag?
Íris Erlingsdóttir skrifar: Hvað myndi gerast ef allir íslenskir karlmenn legðu niður störf í einn dag? Ekki bara þeir sem sitja á skrifstofum, í stjó...
Bílstjóri sakaður um að nauðga konu með fötlun
📅 20.10.2026 👁️ 2
Bílstjóri sakaður um að nauðga konu með fötlun
Maður hefur verið ákærður fyrir nauðgun og, fyrir að beita konu með fötlun kynferðisofbeldi á heimili hennar. Ákærði er sagður hafa notfært sér yfirbu...
Ræddu of­beldi í skólum í borgar­stjórn: Segir kennara vera í legg­hlífum í vinnunni - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Ræddu of­beldi í skólum í borgar­stjórn: Segir kennara vera í legg­hlífum í vinnunni - Vísir
Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, sagðist hafa heyrt af kennara sem notaði legghlífar í vinnunni vegna endurtekinna sparka ...
Ætla að stórefla lögreglu fyrir næstu mótmæli
📅 20.10.2026 👁️ 2
Ætla að stórefla lögreglu fyrir næstu mótmæli
Sebastien Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, hét því í dag að kalla til gríðarmikið lið lögreglu næstu helgi, þegar næstu mótmæli í landinu eru fyr...
Björgunarskipið Sigurvin dró aflvana fiskiskip til lands
📅 20.10.2026 👁️ 2
Björgunarskipið Sigurvin dró aflvana fiskiskip til lands
Áhöfn björgunarskipsins Sigurvins var kölluð út vegna 475 tonna fiskiskips, Hildar, sem hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna og í kjölfarið orðið aflvan...
Einar rifjar upp ólýsanlegan harmleik: „Bréfin urðu ekki fleiri því um nóttina dóu þau öll“
📅 20.10.2026 👁️ 3
Einar rifjar upp ólýsanlegan harmleik: „Bréfin urðu ekki fleiri því um nóttina dóu þau öll“
Einar Örn Thorlacius lögfræðingur birtir afar áhugaverða grein í Morgunblaðinu í dag þar sem hann minnist örlaga móðursystur sinnar, Rögnu Fossberg, s...
Sigur­vin kallaður út vegna Hildar - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Sigur­vin kallaður út vegna Hildar - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Þar segir að átta manns séu í áhöfn Hildar og að ágætisveður hafi verið á staðnum og...
Maður á Vesturlandi dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi – Blóðslettur á veggjum
📅 20.10.2026 👁️ 4
Maður á Vesturlandi dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi – Blóðslettur á veggjum
Héraðsdómur Vesturlands hefur sakfellt mann fyrir stórfellt brot í nánu sambandi og sérstaklega hættulega líkamsárás á sambýliskonu sína. Maðurinn var...
Krafðist þess að fá að vita hvar allir aðrir umsækjendur áttu heima
📅 20.10.2026 👁️ 4
Krafðist þess að fá að vita hvar allir aðrir umsækjendur áttu heima
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur vísað frá kæru manns sem sótt hafði um starf hjá Vegaerðinni. Hafði hann krafist upplýsinga um nöfn allra annarr...
Dýrkeypt fyrir samfélagið að fjárfesta ekki í fangelsismálum
📅 20.10.2026 👁️ 3
Dýrkeypt fyrir samfélagið að fjárfesta ekki í fangelsismálum
Uppbygging nýs öryggisfangelsis hófst með formlegum hætti í dag þegar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tók fyrstu skóflustungu að fa...
Two men re-arrested in RAF Fairford investigation
📅 20.10.2026 👁️ 3
Two men re-arrested in RAF Fairford investigation
Counter-terror police say the men have been arrested on suspicion of assisting a foreign intelligence service.
Two re-arrested on suspicion of assisting Iran intelligence after RAF Fairford incident
📅 20.10.2026 👁️ 2
Two re-arrested on suspicion of assisting Iran intelligence after RAF Fairford incident
The head of UK Counter Terrorism Policing said they consider Iranian state involvement "highly likely".
Two men re-arrested on suspicion of assisting Iran intelligence after RAF Fairford incident
📅 20.10.2026 👁️ 0
Two men re-arrested on suspicion of assisting Iran intelligence after RAF Fairford incident
The head of UK Counter Terrorism Policing said they consider Iranian state involvement "highly likely".
Kristófer Acox selur í­búð með potti í Urriðaholti - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Kristófer Acox selur í­búð með potti í Urriðaholti - Vísir
„Nú er komið að því að finna nýja eigendur að þessari glæsilegu íbúð í Urriðaholti!“ skrifar Kristófer á Facebook en hann eignaðist fyrr á árinu son m...
Ekki til­raun til mann­dráps að taka sam­býlis­konuna kverka­taki - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Ekki til­raun til mann­dráps að taka sam­býlis­konuna kverka­taki - Vísir
Í dómi Héraðsdóms Vesturlands, sem kveðinn var upp í gær, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sa...
Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk - Vísir
📅 20.10.2026 👁️ 3
Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk - Vísir
Sjálfvirku banni við ráðningu vegna þessara brota yrði skipt út fyrir mat á hæfi hvers umsækjanda. Ráðuneytið rökstyður breytinguna meðal annars með þ...
Ögmundur segir „upplýsingaóreiðu“ notaða sem vopn til að þagga niður í fólki
📅 20.10.2026 👁️ 3
Ögmundur segir „upplýsingaóreiðu“ notaða sem vopn til að þagga niður í fólki
Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra og fréttamaður RÚV, segir hugtök á borð við upplýsingaóreiðu og falsfréttir geta orðið að vopnum til að þagga ...
Sanna lýsir óttanum sem greip hana á Akureyrarflugvelli – Ástæðuna rekur hún til æsku sinnar
📅 20.10.2026 👁️ 4
Sanna lýsir óttanum sem greip hana á Akureyrarflugvelli – Ástæðuna rekur hún til æsku sinnar
Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins, segir að hún verði stundum hissa á því hvað hún er fljót að bregðast við því versta, það sé e...