Það samgöngukerfi sem Icelandair hefur byggt upp hefur grundvallaráhrif á uppbyggingu gagnavera og landeldis hér á landi. Fyrirtækin stóla á leiðakerfið. Þetta er mat Marinós Arnar Tryggvasonar, fyrrverandi forstjóra Kviku banka sem kom að endurskipulagningu fyrirtækisins þegar kórónuveirufaraldurinn reið yfir.
Hann segir að almenningur á Íslandi skilji ekki hversu mikil umsvif fyrirtækisins séu og að þau hafi verið byggð upp á áratugalangri þrautseigju starfsfólks og eigenda þess.
Öll fyrirtæki verða fyrir áhrifum
Það sé ekki aðeins hægt að horfa á Icelandair út frá þeim áhrifum sem það hefur á ferðaþjónustuna. Horfa verði til hagkerfisins í heild. Öll fyrirtæki, meira og minna, reiði sig á umsvif Icelandair.
Hann bendir á það í samtali á vettvangi Spursmála að það séu fleiri flug til Íslands til Norður-Ameríku á degi hverjum heldur en öllum öðrum Norðurlöndum til samans.
Hann hefur áhyggjur af stöðu fyrirtækisins og bendir á að það sé ekkert til skiptanna um þessar mundir þegar fyrirtækið er í taprekstri, rétt eins og það hefur verið síðustu ár. Orðin lætur hann falla í aðstæðum þar sem fyrirtækið á í harðvítugum kjaradeilum við flugmenn sína.
Hann segir að þótt fyrirtæki séu þjóðhagslega mikilvæg þá sé ekki sjálfsagt að þau lifi af.
Viðtalið við Marinó Örn má sjá og heyra í heild sinni hér að neðan: