Formaður Neytendasamtakanna fagnar því að Samkeppniseftirlitið bregðist við ábendingum um möguleg samkeppnislagabrot Ölgerðarinnar.
Hann segir Neytendasamtökin hafa heyrt af viðskiptaháttum Ölgerðarinnar sem fjallað var um í Kveik í gær og tilkynnt til Samkeppniseftirlitsins. Í þætti Kveiks í gær kom fram að keppinautar Ölgerðarinnar telja fyrirtækið útiloka samkeppnisaðila með samningum sem hún gerir við viðskiptavini. Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, á föstudag.
„Þessi dæmi sem sjást þarna í Kveiksþættinum eru mjög alvarleg og hugsanlega brot á 11. grein samkeppnislaga. Öll aðför að samkeppni er aðför að neytendum því neytendur borga brúsann á endanum með einum eða öðrum hætti,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna.
Meðal þess sem kom fram í þætti Kveiks var að að fjölmargir barir væru hættir að versla inn orkudrykkinn Red Bull og notuðu Eilífa Orku frá Ölgerðinni þegar viðskiptavinir panta vodka í Red Bull. Ölgerðin missti umboðið fyrir Red Bull fyrir tveimur árum.
„Ég myndi klárlega segja að þetta séu vörusvik. Ef þú færð vöru sem þú biður ekki um, undir því yfirskyni að það sé önnur vara, þá eru það svik,“ segir Breki.
Hafa áhyggjur af fákeppni
Breki segir að Neytendasamtökin hafi almennt miklar áhyggjur af samþjöppun á mörkuðum.
„Við vitum að það er fákeppni á mjög mörgum sviðum hér á Íslandi. Við höfum af því áhyggjur að einhverjir kunni að vera að misnota sér þá aðstöðu. Þess vegna er svo mikilvægt að Samkeppniseftirlitið hafi þau tæki og tól að geta farið inn og kannað hvort fyrirtæki séu að fara yfir strikið.“
Hann segir að dæmi Ölgerðarinnar sýni að það megi aldrei sofa á verðinum þegar komi að samkeppnismálum.
„Þetta sýnir kannski enn og aftur að virk samkeppni þarfnast virks eftirlits. Það má aldrei sofa á verðinum og það þarf alltaf að veita þetta aðhald sem Samkeppniseftirlitið gerir þarna í þessu máli.“