Samkvæmt dagbók lögreglunnar voru tveir handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt í hverfi 101, einn fyrir brot á áfengislögum í sama hverfi og ökumaður rafmagnshlaupahjóls fyrir að hafa ekið því á bifreið í hverfi 101.
Þá voru tveir handteknir fyrir líkamsárás í miðbænum. Ekki er tiltekið nákvæmlega hvar árásin átti sér stað.
Í Garðabæ var ökumaður handtekinn fyrir að hafa ekið bíl sínum á byggingu og þrír til viðbótar fyrir að aka undir áhrifum áfengis eða vímuefna. Í Kópavogi var tilkynnt um innbrot í heimahús og einn handtekinn fyrir ölvunarakstur í Breiðholti. Þá var einn ökumaður handtekinn eftir stutta eftirför í Árbæ. Í dagbók kemur fram að hann hafi reynst undir áhrifum og án ökuréttinda.