Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði venju samkvæmt í mörg horn að líta í gærkvöldi og í nótt og eru alls 78 mál bókuð í kerfum lögreglu frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun. Tveir gista í fangageymslu lögreglu.Í umdæmi lögreglustöðvar 1, sem sinnir meðal annars miðborginni, var ökumaður stöðvaður fyrir of hraðan akstur en sá ók á 190 kílómetra hraða á vegkafla þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. Ökumaður var fluttur á lögreglustöð þar sem hann var sviptur ökuréttindum.
Ók á 190 kílómetra hraða – Lögregla svipti hann ökuréttindum