Ofbeldislýður í sauðagæru
⚠️ Eldri en 6 mánuðir

Ofbeldislýður í sauðagæru

Ofbeldislýður í sauðagæru

Huginn Þór Grétarsson skrifar:

Á Íslandi viðgengst ákveðin tegund af ofbeldi fyrir opnum tjöldum og fjölmiðlar, stjórnvöld og stór hluti almennings líta undan.

Þessi hópur gerenda er samsettur af fólki sem blindast af reiði og telur sig mega beita ofbeldi því það HELDUR að viðkomandi sem þolir árásirnar hafi gert eitthvað ósæmilegt. Það veit þó oftast lítið eða jafnvel ekkert um málin.

Þessi tegund af ofbeldi hefur grafið sig inn í samfélagið undir yfirskyni ýmissa hugsjónabylgna eða baráttuhreyfinga gegn ofbeldi. En það er aldrei í lagi að beita ofbeldi, ekki heldur þá sem eru sakaðir um slíkt.

Algeng birtingamynd er opinbert níð þar sem reynt er að rægja manneskju, sem þróast síðan út í hópeinelti af hálfu fullorðinna. Einn ólánsamur „svartur sauður“ er tekinn fyrir í einu, þar til hann liggur eftir óvígur og sá næsti verður fyrir barðinu.

Þetta stingur í stúf, þar sem við reynum flest öll að kenna börnum að stunda ekki slíka meinsemd, gróft einelti, en þegjum svo þunnu hljóði þegar illa innrættir fullorðnir einstaklingar beita skipulögðu einelti.

Hatrið vex og fólk í þessum ofbeldisham espir fleiri upp, sem slást í hópinn. Ekki dugar að niðurlægja því einnig er reynt að eyðileggja fyrir þolandanum og vega að lífsgæðum hans. Þetta fólk sem svona hagar sér vill öðrum ekki vel. Það vill meiða. Það vill jafnvel að þolandinn missi vinnuna sína. Og já, það þarf slæmt innræti til að haga sér með þessum hætti.

Árásirnar eru endurteknar og standa jafnvel yfir árum saman. Sumir missa allt, lifibrauð sitt og mannorð.

Þolandi þessa eineltisofbeldis verður eins og heit kartafla… enginn vill snerta á neinu sem tengist viðkomandi. Tilganginum er náð hjá glefsandi úlfunum. Þolandi situr eftir með sárt enni, og brotna sál.

Gerendahópurinn afmarkast ekki bara við einstaklinga, sem beita svívirðingum og þrýstingi til að skemma fyrir.

Starfsfólk hjá hinu opinbera tekur líka þátt og fer að refsa viðkomandi eftir fremsta megni, t.d. með því að loka á viðskipti, eða lágmarka þau. Það misnotar stöðu sína til að slást í hóp ofbeldislýðsins og beitir stjórnsýslunni til þess. Dæmin eru fjölmörg.

Svo mikið hatur er til staðar að gerendurnir leggja á sig umtalsverða vinnu til að valda sem mestum skaða.

Það er ljóst út frá þessu hegðunarmynstri í samfélaginu að múgurinn þarf enn á sínum gapastokk að halda, blóðþyrstur í að taka fyrir einstaklinga og lítillækka þá. Eyðileggja fyrir öðrum. Gerendurnir nærast á óförum annarra.

Við erum sömu villimennirnir og grýtir fólk eða pyntar úti á torgum, án dóms og laga. Þetta er æstur múgurinn úr hringleikahúsum fortíðar. Lýðurinn sem hrópaði óorð að saklausum einstaklingum sem voru hýddir og aflífaðir á torgum úti.

Og eins og forðum daga þykist þetta fólk sem beitir þessu ofbeldi vera voðlega gott. Þetta fólk er glefsandi úlfar í sauðagæru, með háværa dyggðaflöggun og réttlætingar á því hvers vegna megi skemma líf ákveðinna einstaklinga, og oft eru þetta sömu gerendurnir sem ráðast á einn af öðrum, aftur og aftur. Þetta fólk hefur stundað slíkt ofbeldi árum saman, sama fólkið hef ég séð ötult að verki og bíður færis og slæst í árásarhópinn um leið og nýtt fórnarlamb er fundið. Það einfaldlega virðist ekki mettast af hatrinu og þörfinni til að meiða.

Þetta er þykjustuleikur þeirra sem þykjast vera svo góðir en ráða sér ekki fyrir reiði og hatri og óvild í garð annars fólks. Þetta fólk er ofbeldisfólk.

Sem þolandi slíks ofbeldis hef ég horft upp á lágkúrulega hegðun, illa innrætta einstaklinga; fávísi og þekkingarleysi eru aðaleinkenni þeirra sem taka þátt í blindni, og ekki vantar klappstýrurnar og meðvirknina í samfélaginu, og hjá stjórnvöldum og dómstólum.

Þessu ofbeldi linnir ekki. Tíu ár líða og ef eitthvað er, horfi ég upp á ljótari birtingamyndir með hverju árinu.

Þetta fær mann til að missa trú á samfélagi manna, fólki upp til hópa (því þeir sem taka ekki þátt, þeir þegja).

Sumir hafa kiknað undan þessum viðbjóði, opinberu níði sem margir fjölmiðlar taka þátt í, og þeir þolendur hafa tekið eigið líf. Þeir höfðu misst allt, æruna, vinnuna, vinina og jafnvel fjölskyldu. Aðrir eru andlega niðurbrotnir, því þeir mega sín einskis gegn svona fjölmennum ofbeldislýð.

Náungakærleikur og góðmennska virðist víkja tiltölulega auðveldlega fyrir meðvirkni og þátttöku í svona skrípaleik, einelti og ofbeldi. Gerendurnir fá klapp á bakið af samfélaginu þegar þeir beita ofbeldi af þessari gerð. Gerendur mínir urðu ráðherra, borgarstjóri og svo má áfram telja, á meðan ég sit eftir með stórskaða og áframhaldandi níð.

Er það virkilega svona samfélag sem við viljum búa í? Að níðingsverk og ofbeldi séu verðlaunuð?

Höfundur þessa hugrenningspistils getur æ minna samsamað sig samfélagi manna hér á landi þar sem ofbeldi af þessari tegund grasserar. Hvar eru hugrökku krakkarnir á skólalóðinni sem risu upp og börðust gegn svona hegðun? Mega þeir sín einskis í samfélagi fullorðinna? Ég man eftir vel innrættum krökkum sem stóðu upp og létu í sér heyra og börðust gegn svona ranglæti, en ég man líka eftir einelti og grimmd barna. En sú hegðun var alls ekki litin jákvæðum augum, eins og samfélagið gerir í dag gagnvart hópeinelti fullorðinna.

Og skrímslið hefur vaxið og nærst undanfarin ár á meðan ekki er spyrnt gegn ódæðum þeim sem ég lýsi, svo múgurinn er orðinn að fullvaxta fenrisúlfi og löngu búinn að kasta gærunni, því nú eru það ekki bara þeir sem SAGÐIR eru hafa gert eitthvað misjafnt sem verða fyrir árásum heldur líka þeir sem hafa ekki réttar skoðanir. Ofbeldið er framið frammi fyrir alþjóð og telst orðið „eðlilegt“. Enn herðist taumurinn um háls frjálsra manna og fólk er hreinlega orðið hrætt við að tjá skoðanir sínar, því „góða fólkið“ ræðst að þeim sem eru ekki sammála með mikilli heift og grimmd og rakkar það niður. Útilokar. Ákveðnar skoðanir eru bannaðar eins og í góðum einræðisríkjum og refsivöndurinn fer á loft.

En fæst trúum við á villimannsleg kerfi á borð við hugmyndina um auga fyrir auga. Við erum flest ekki sammála því að fólk megi beita þann ofbeldi sem sagður er hafa beitt ofbeldi. Samt fær þetta að líðast í samfélaginu án afleiðinga fyrir ofbeldisfólkið. Samt taka fjölmiðlar þátt og styðja við slíka orðræðu.

Við eigum ekki að góðkenna að fólk sem þykist hefna, megi beita níði, einelti og ofbeldi.

Við eigum að taka á þessari ofbeldishegðun og fordæma hana, eins og allt annað ofbeldi, jafnvel þó gerendur þykist vera voðalega góðar manneskjur.

Höfundur er baráttumaður fyrir betra samfélagi, og er á móti eineltisofbeldi, hvort sem gerendur séu börn eða fullorðnir.

#ofbeldislýður #sauðagæru


Upprunaleg slóð:
https://frettin.is/2026/04/21/ofbeldislydur-i-saudagaeru/

📰 Aðrar fréttir

Björn Jón skrifar: Fegurð í hinu óhugnanlega
📅 25.10.2026 👁️ 0
Björn Jón skrifar: Fegurð í hinu óhugnanlega
Mynd Ef marka má Eyrbyggja sögu kemur Þórólfur Mostrarskegg hingað út rét
Arnar Þór um þátt Gísla Marteins: „reyna samviskusamlega að hlæja“
📅 25.10.2026 👁️ 0
Arnar Þór um þátt Gísla Marteins: „reyna samviskusamlega að hlæja“
Arnar Þór Jónsson sakar RÚV um að hafa ekki upplýst áhorfendur og hlustendur um ástandið í Frakklandi og áhyggjur þýskra bankamanna af framtíð evrunna...
Stefna Anthropic fyrir brot á höfundar­rétti Presley - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 0
Stefna Anthropic fyrir brot á höfundar­rétti Presley - Vísir
Í stefnunni er því haldið fram að Anthropic, sem á gervigreindarmállíkanið Claude, hafi brotið gegn höfundarrétti 274 laga Presley. Þar á meðal eru he...
Mikilvægt að Norðurlöndin séu meira samstíga í næstu krísu
📅 25.10.2026 👁️ 0
Mikilvægt að Norðurlöndin séu meira samstíga í næstu krísu
Öryggis- og varnarmál verða í brennidepli á Norðurlandaráðsþingi í vikunni. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem sækir þingið segir áherslu verða lagða ...
Upp­lifa endur­tekið á­fall vegna dómsins - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 0
Upp­lifa endur­tekið á­fall vegna dómsins - Vísir
Dómur Landsréttar hefur sætt harðri gagnrýni og í undirskriftasöfnun kalla þúsundir eftir því að óháð úttekt verði gerð á meðferð kynferðisbrotamála e...
„Fylgir því mikil skömm að eiga for­eldri í fangelsi“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 0
„Fylgir því mikil skömm að eiga for­eldri í fangelsi“ - Vísir
Gefið var úr Styrktarsjóði geðheilbrigðis í vikunni þar sem samtals voru úthlutaðar 18 milljónir króna til þrettán verkefna. Styrkupphæðirnar námu frá...
Laxveiði jókst um 35% milli ára
📅 25.10.2026 👁️ 0
Laxveiði jókst um 35% milli ára
12% meiri lax veiddist á stöng í sumar en á meðalári. Heildarfjöldi stangveiddra laxa var um 46.300 fiskar. Það er 35% meiri veiði en í fyrra.Þetta ke...
Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ - Vísir
„Við bara erum bara klárir í startholunum og bíðum þangað til við fáum nægilegt frost,“ Einar Bjarnason rekstrarstjóri skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæð...
British mum Leanne Gregory who died in Bahamas was celebrating wedding anniversary
📅 25.10.2026 👁️ 1
British mum Leanne Gregory who died in Bahamas was celebrating wedding anniversary
Leanne Gregory, from Stapleford in Nottinghamshire, died trying to save her sons swept out to sea.
Íþrótt í fjötrum íslenskrar sérvitundar og forræðishyggju
📅 25.10.2026 👁️ 1
Íþrótt í fjötrum íslenskrar sérvitundar og forræðishyggju
Íþrótt í fjötrum íslenskrar sérvitundar og forræðishyggju Fréttin25. október 2026Eldur Smári, Innlent, ÍþróttirLeave a Comment Emin Kadri. Eldur Smári...
Skilur skiptar skoðanir á sameiningu lögregluembætta
📅 25.10.2026 👁️ 1
Skilur skiptar skoðanir á sameiningu lögregluembætta
Dómsmálaráðherra segir skiljanlegt að skoðanir séu skiptar á sameiningum lögregluembætta. Alls hafa tuttugu og ein umsögn borist í samráðsgátt um frum...
LA PERDITION – Glötun Frakklands
📅 25.10.2026 👁️ 2
LA PERDITION – Glötun Frakklands
LA PERDITION – Glötun Frakklands Fréttin25. október 2026Erlent, Hælisleitendur, Helga Dögg SverrisdóttirLeave a Comment Helga Dögg Sverrisdóttir skrif...
Taika Waititi greinir frá sérstakri reglu í hjónabandinu sem hann og Rita Ora reyna að fylgja
📅 25.10.2026 👁️ 3
Taika Waititi greinir frá sérstakri reglu í hjónabandinu sem hann og Rita Ora reyna að fylgja
Leikarinn og leikstjórinn Taika Waititi hefur opinberað eina reglu sem hann og eiginkona hans, söngkonan Rita Ora fylgja í sambandi sínu, í þeim tilga...
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri
📅 25.10.2026 👁️ 3
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri Fréttin25. október 2026InnlendarLeave a Comment Miklar óeirðir brutust út í...
Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Lands­virkjunar“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Lands­virkjunar“ - Vísir
„Grundvöllurinn er traust og traust er mjög flókið fyrirbrigði sem þarf að vera til staðar þegar menn eru að sinna svona starfi og þá er líka mikilvæg...
Nichole spyr Elliða hvort fjölmenningarfulltrúi starfi hjá Ölfusi
📅 25.10.2026 👁️ 3
Nichole spyr Elliða hvort fjölmenningarfulltrúi starfi hjá Ölfusi
Nichole Leigh Mosty, fyrrverandi þingkona Bjartrar framtíðar og fyrrverandi forstöðukona Fjölmenningarseturs, spyr Elliða Vignisson, bæjarstjóra Ölfus...
Loka Vestur­bakkanum á kjör­dag Ísraela - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Loka Vestur­bakkanum á kjör­dag Ísraela - Vísir
Þetta hefur BBC eftir ísraelska hernum en þingkosningar fara fram í Ísrael á þriðjudaginn. Lokunin nái sérstaklega til verkamanna „um alla Júdeu, Sama...
Serbar ganga til skyndikosninga - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Serbar ganga til skyndikosninga - Vísir
Ðuro Macut forsætisráðherra óskaði eftir því að Aleksandar Vucic, forseti og flokksbróðir hans, ryfi þing og boðaði til kosninga þann 9. september síð...
Segir að endurskoða þurfi breytingar á Loftbrú
📅 25.10.2026 👁️ 3
Segir að endurskoða þurfi breytingar á Loftbrú
Þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi telur að innviðaráðherra þurfi að endurskoða boðaðar breytingar á niðurgreiðslu vegna Loftbrúar. Sjö þú...
Ljóst að endurskoða þurfi breytingar á Loftbrú
📅 25.10.2026 👁️ 0
Ljóst að endurskoða þurfi breytingar á Loftbrú
Þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi telur að innviðaráðherra þurfi að endurskoða boðaðar breytingar á niðurgreiðslu vegna Loftbrúar. Sjö þú...
Pawel Bartoszek: Andstaða við bókun 35 er einhvers konar hugmynd um fullveldið
📅 25.10.2026 👁️ 3
Pawel Bartoszek: Andstaða við bókun 35 er einhvers konar hugmynd um fullveldið
Ef Alþingi samþykkir bókun 35 á næstu vikum er mál ESA gegn okkur orðið ansi veikt. Pawel Bartoszek, formaður þingflokks Viðreisnar og fyrrverandi for...
Um­deildur sýknudómur þegar haft al­var­legar af­leiðingar - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Um­deildur sýknudómur þegar haft al­var­legar af­leiðingar - Vísir
Brasilíumenn ganga að kjörborðinu í dag í seinni umferð forsetakosninga. Val kjósenda stendur á milli sitjandi forseta og frambjóðanda hægrimanna sem ...
Málverkið af danska kónginum
📅 25.10.2026 👁️ 3
Málverkið af danska kónginum
Málverkið af danska kónginum Í Frið­riks­borg­ar­höll­inni á Norður – Sjálandi má sjá mál­verk af dönskum þjóð­höfð­ingjum, langt aftur í aldir. Fyrst...
Ísraelsher hrekur íbúa Hebron frá heimilum sínum
📅 25.10.2026 👁️ 3
Ísraelsher hrekur íbúa Hebron frá heimilum sínum
Ísraelsher ætlar að loka öllum landamærastöðvum á Vesturbakkanum á þriðjudag þegar kosningar eru í Ísrael.Tvö þúsund Palestínumenn voru hraktir frá he...
Skiljan­lega skiptar skoðanir á stærstu kerfis­breytingu í ára­tug - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Skiljan­lega skiptar skoðanir á stærstu kerfis­breytingu í ára­tug - Vísir
Ráðherrann kynnti fyrir nokkrum vikum nýjar breytingar á umdæmum lögreglunnar þar sem fækka á þeim úr sjö í þrjú. Áformin hafa sætt töluverðri gagnrýn...
Lögregla kölluð til vegna líkamsárásar í Skeifunni
📅 25.10.2026 👁️ 3
Lögregla kölluð til vegna líkamsárásar í Skeifunni
Lögregla var kölluð að Hagkaup í Skeifunni um sjöleytið í gærkvöld. 18 ára karlmaður óskaði eftir aðstoð eftir að hópur manna réðst á hann með barsmíð...
Vetrartími í Evrópu
📅 25.10.2026 👁️ 3
Vetrartími í Evrópu
Vetrartími tók gildi í Evrópu í nótt og klukkan var þá færð klukkustund aftur.Tímamunurinn milli Íslands og vesturhluta Evrópu og Skandinavíu er nú ei...
Orðið á götunni: Pilsfaldakapítalistar vilja maka krókinn – á okkar kostnað!
📅 25.10.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Pilsfaldakapítalistar vilja maka krókinn – á okkar kostnað!
Orðið á götunni er að vert sé að staldra við og skoða vandlega þau áform sem nú eru uppi um rekstur Litla spítalans, sem boðað er að hefji senn starfs...
Fluttur á bráða­mót­töku eftir líkams­á­rás í Skeifunni - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Fluttur á bráða­mót­töku eftir líkams­á­rás í Skeifunni - Vísir
Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að tilkynning barst um líkamsárás í hverfi 108 og sé málið í rannsókn. Um hóp manna hafi verið a...
Manstu þegar 112 var nýtt neyðarnúmer?
📅 25.10.2026 👁️ 3
Manstu þegar 112 var nýtt neyðarnúmer?
Um þetta leyti á árinu 1995 var vinna við innleiðingu á einu neyðarsímanúmeri fyrir allt landið langt á veg komið. Fram að því hringdi fólk í símanúme...
Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu
📅 25.10.2026 👁️ 1
Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu
Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu Svarfaðarbraut 12 Mikið endurnýjað einbýlishús við Svarfaðarbraut 12 á Dalvík hefur verið sett ...
„Ég var al­veg skelfingu lostinn“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
„Ég var al­veg skelfingu lostinn“ - Vísir
Tolli var vel upp lagður þegar hann hitti blaðamann, nýkominn úr jóga þar sem hann segist vera nýgræðingur. Sem kemur á óvart, eins mikið og hann hefu...
Föstudagar fortíðar: „Kannski er ágætt að lenda í kulnun þegar maður er 14 ára, þá lendir maður ekkert aftur í því“
📅 25.10.2026 👁️ 2
Föstudagar fortíðar: „Kannski er ágætt að lenda í kulnun þegar maður er 14 ára, þá lendir maður ekkert aftur í því“
Ida Karolina Harris tók þátt í loftslagsverkföllunum á Austurvelli í sjö ár, lengur en flestir. Hún segir að það hafi verið margt jákvætt við þátttöku...
Bar­áttan um Brasilíu - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Bar­áttan um Brasilíu - Vísir
Flávio Bolsonaro hafði betur gegn hinum áttræða Lula í fyrri umferð forsetakosninganna þann 4. október síðastliðinn. Hann náði þó ekki hreinum meirihl...
Neglur losnuðu hjá nær 40% notenda þyngdarstjórnunarlyfja
📅 25.10.2026 👁️ 2
Neglur losnuðu hjá nær 40% notenda þyngdarstjórnunarlyfja
Þyngdarstjórnunarlyf geta aukið líkur á að neglur losni frá naglabeði samkvæmt nýrri rannsókn. Nær 40% þátttakenda sem notuðu GLP-1 þyngdarstjórnunarl...
Lægir víðast hvar á morgun
📅 25.10.2026 👁️ 3
Lægir víðast hvar á morgun
Búast má við norðan kalda eða strekkingi í dag en austan Öræfa má reikna meðallhvössum eða hvössum vindi fram að hádegi samkvæmt Veðurstofu Íslands.Úr...
Hörður Arnars­son og náttúru- og inn­viða­gjald á Sprengi­sandi - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Hörður Arnars­son og náttúru- og inn­viða­gjald á Sprengi­sandi - Vísir
Fyrsti gestur Páls verður Dr. Hafsteinn Dan Kristjánsson, lagaprófessor. Hann hefur meðal annars kennt Evrópu- og stjórnsýslurétt við Oxford-háskóla o...
Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst - Vísir
Þetta segir Hrund Ottósdóttir, 47 ára Grindvíkingur, en í desember verða þrjátíu ár liðin frá því að tvíburabróðir hennar, Hafliði, féll fyrir eigin h...
14,600 people are waiting for home care support in the Canary Islands
📅 25.10.2026 👁️ 3
14,600 people are waiting for home care support in the Canary Islands
Thousands of people who need help with everyday activities are still waiting for support in the Canary Islands, despite a substantial reduction in del...
Stigmögnun skuggastríðsins
📅 25.10.2026 👁️ 4
Stigmögnun skuggastríðsins
Orðin fjölþáttaógnir, fjölþáttaárásir og fjölþáttastríð hafa heyrst töluvert í fréttum síðustu mánuði og ekki að ástæðulausu því samhliða innrásarstrí...
Sleit sam­bandi við föður sinn í ljósi á­sakana - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Sleit sam­bandi við föður sinn í ljósi á­sakana - Vísir
The Sun og BBC greina frá. BBC hefur eftir heimildarmönnum sínum sem nákomnir væru Meghan að hún hefði tjáð föður sínum að samskiptum þeirra á milli v...
Musk says SpaceX restricted Ukraine's Starlink connection as service restored
📅 25.10.2026 👁️ 3
Musk says SpaceX restricted Ukraine's Starlink connection as service restored
The tech billionaire accuses Ukraine of violating its terms of service by using the network for military activity.
Dýra steikin á mat­seðlinum er ekki þarna til að seljast - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Dýra steikin á mat­seðlinum er ekki þarna til að seljast - Vísir
Því það eru ótrúlegustu atriði sem eru að hafa áhrif á okkur!  Og sumir spila auðvitað á þetta. Dýra steikin á matseðlinum er til dæmis ekkert endileg...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Annars verða allir drepnir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Annars verða allir drepnir
Mynd Skapandi einstaklingur með frumlega hugsun rekst
Nóg sé komið af Trump - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Nóg sé komið af Trump - Vísir
„Eftir tveggja ára óreiðu, grimmd, spillingu og vanhæfni, sem á sér enga hliðstæðu í nútímanum, gefst ykkur tækifæri til að segja: „Nú er nóg komið,““...
Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
📅 25.10.2026 👁️ 3
Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn Skylar SkyeÖrlög Carrick gætu ráðist í dag Mynd: Instagram Kona sem er mi...
19-year-old airlifted to hospital after serious motorbike accident in Tenerife
📅 25.10.2026 👁️ 3
19-year-old airlifted to hospital after serious motorbike accident in Tenerife
A 19-year-old man was seriously injured and a second man taken to hospital after a collision involving two motorcycles and a car on the TF-24 in Tener...
Norðan kaldi og snjó­koma til fjalla - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Norðan kaldi og snjó­koma til fjalla - Vísir
„Úrkomusvæði sem kemur úr austri mjakast yfir landið í dag með úrkomu, en sunnan- og vestanlands verður úrkomulítið þangað til í kvöld. Þó gæti hann h...
SUNDAY WEATHER: Temperatures up to 30°C as calima returns
📅 25.10.2026 👁️ 4
SUNDAY WEATHER: Temperatures up to 30°C as calima returns
Temperatures could reach 30°C in parts of the Canary Islands today, Sunday 25th October, with sunny spells, passing cloud and a return of calima, main...
Obama gagnrýndi Trump harðlega
📅 25.10.2026 👁️ 4
Obama gagnrýndi Trump harðlega
Fyrrum forseti Bandaríkjanna Barack Obama fór hörðum orðum um núverandi forseta Donald Trump á kosningafundum frambjóðenda Demókrataflokksins í Ohio o...