Óspektir halda áfram í Norður-Írlandi vegna hnífaárásar á mánudagskvöld. Um 200 söfnuðust saman í Newtonabbey þar sem fólk sást henda hlutum í átt að lögreglu. Hún svaraði með því að sprauta vatni á hópinn til að dreifa honum.
Fólk kom einnig saman í Coleraine, norðvestur af Derry eða Londonderry, í kvöld. Lögregla lokaði vegum en á fréttavakt BBC segir að vel yfir 100 séu saman komnir. Lögreglan biðji fólk að halda ró sinni en fjöldi fólks hafi hrópað „út með þá“, „samfélaginu stafar hætta af þeim“ og „þetta endar í kvöld“.
Mótmæli brutust út í gær stuttu eftir að þrítugur flóttamaður frá Súdan var ákærður fyrir tilraun til manndráps, vörslu hnífs á almannafæri og hótanir. Lögregla segir hann hafa sótt um hæli 2023 stuttu eftir að hann kom til Norður-Írlands.
Myndskeið af árásinni á mánudag fór í dreifingu á samfélagsmiðlum. Þar sést árásarmaðurinn, Hadi Alodid, sitja klofvega ofan á öðrum manni og stinga hann oft í andlit og háls. Á öðru myndskeiði sjást nokkrir einstaklingar yfirbuga árásarmanninn þar til lögregla kemur á vettvang.
Þolandinn er á fimmtugsaldri og heitir Stephen Ogilvy. Hann var fluttur alvarlega særður á sjúkrahús, missti vinstra augað, hlaut sár á því hægra sem og alvarleg sár á hálsi og baki.
Fólk safnaðist saman í nokkrum borgarhlutum Belfast í gær. Margir voru grímuklæddir og kveiktu í bílum og íbúðum. Fréttamaður breska ríkisútvarpsins segir mótmælendur hafa öskrað „burt með útlendinga“.
Friðsöm mótmæli eina leiðin áfram
Fjölskylda Ogilvy sagði í yfirlýsingu í dag að hún væri í áfalli eftir árásina. „Við erum algjörlega niðurbrotin eftir hræðilega árás. Þetta er algjört áfall fyrir fjölskylduna og núna er eina forgangsverkefni okkar að vera við hlið hans og hjálpa honum að ná sér.“
Þau þakka fólkinu sem hafi stigið inn í með hugrekki þegar árásin varð. „Snögg viðbrögð ykkar björguðu lífi hans án efa og við gleymum aldrei því sem þið gerðuð fyrir hann á þessari stundu.“
Í yfirlýsingunni segir fjölskyldan að þau séu meðvituð um spennuna og mótmæli í kjölfar árásarinnar. „Við viljum að það sé algjörlega skýrt að óeirðir næturinnar eru ekki velkomnar, friðsæl mótmæli eru eina leiðin áfram.“
Þau vilji ekki að árásin verði notuð til að sundra fólki og kynda undir fjandskap. „Margir innflytjendur leggja afar mikið af mörkum til landsins okkar, þar með talið í heilbrigðiskerfinu og ferðaþjónustu, og við reiðum okkur á þá til að láta allt ganga vel í landinu okkar.“
Ofbeldisverkin verða ekki réttlætt
Lögreglan segir yfir hundrað hafa verið ákærða vegna óeirðanna. Lögreglustjóri Norður-Írlands bað fólk að sýna stillingu og leyfa réttarfarinu að hafa sinn gang, þegar hann talaði við fjölmiðla í dag.
Um 200 lögreglumenn sendir til borgarinnar til að aðstoða lögregluna sem fyrir var.
Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, þakkaði lögreglunni, öðrum á vettvangi og almenningi fyrir að bregðast við árásinni á mánudag, þegar hann talaði í breska þinginu í dag.
„Samúð okkar er með þolandanum. En við skulum hafa það á hreinu þingforseti, að ofbeldisverkin í kjölfarið og íkveikjurnar verða ekki réttlætt.“